Allt á floti í Feneyjum Atli Ísleifsson skrifar 13. nóvember 2019 08:49 Markúsartorg er á floti. AP
Allt er á floti í Feneyjum en vatnshæðin hefur ekki mælst meiri í borginni frá árinu 1966. Á myndum sést hvernig sjór þekur Markúsartorg og íbúar og ferðamenn þurfa að vaða til að komast á milli staða. Vatnshæðin hefur mest mælst 1,87 metrar yfir meðalhæð, en í frétt BBC segir að einungis einu sinni frá því að skráningar hófust árið 1923 hafi vatnshæðin mælst meiri. Það var árið 1966 þegar vatnshæðin mældist 1,94 metrar yfir meðalhæð. Sjór hefur einnig flætt inn í Markúsarkirkjuna sjálfa, en það ku vera í einungis sjötta sinn á 1.200 árum sem það gerist. Pierpaolo Campostrini, sem á sæti í stjórn kirkjunnar, segir að fjögur af þeim sex tilfellum hafa átt sér stað á síðustu tuttugu árum.Alls hafa borist fréttir af tveimur sem hafi látið lífið í flóðunum, á eyjunni Pellestrina. Þannig fékk maður raflost eftir að hafa tengt vatnsdælu á heimili sínu og svo fannst annar maður látinn á eyjunni þar sem látið er rakið til flóðanna. Borgarstjórinn Luigi Brugnaro segist ætla að lýsa yfir neyðarástandi og varað við að flóðin muni skilja eftir sig varanlegar skemmdir. Biðlar hann til Ítalíustjórnar um aðstoð og sakar loftslagsbreytingar um ástandið. Síðast flæddi yfir Markúsartorg í október 2018.GettyGettyEPA
Ítalía Mest lesið „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Erlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum Innlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Fleiri fréttir Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Sjá meira