Verkfallsaðgerðum í dag hefur verið frestað samkvæmt heimildum Vísis.
Klukkan tíu leggja fréttamenn, ljósmyndarar og myndatökumenn á vefmiðlum niður störf í tólf tíma. Um er að ræða þriðju aðgerðina í boðuðum verkfallsaðgerðum félaga í Blaðamannafélagi Íslands á fjórum fjölmiðlum. Fréttablaðinu, Morgunblaðinu, RÚV og Vísi.
Verkfallsaðgerðin á að hafa áhrif á fyrrnefna vefmiðla en sú hefur ekki verið raunin á vef Morgunblaðsins. Þar hafa verktakar, blaðamenn Morgunblaðsins og yfirmenn skrifað fréttir á vef Mbl.is á meðan verkfallsaðgerðum stendur.
Aðgerðirnar hafa verið fordæmdar af vefblaðamönnum Mbl.is og hefur Blaðamannafélag Íslands stefnt Samtökum atvinnulífsins vegna meintra verkfallsbrota starfsmanna Árvakurs. Málið er til meðferðar hjá Félagsdómi en nokkuð er í að niðurstaða fáist í málinu þar sem það er ekki í forgangi.

Fréttir verða sagðar á Bylgjunni á heila tímanum eins og venjulega í dag með þéttum hádegistíma klukkan tólf. Fréttir Stöðvar 2 verða á sínum stað klukkan 18:30. Vísir fer aftur í fullan gang um leið og klukkan slær 22.
Stór hluti blaðamanna á Ríkisútvarpinu er í Félagi fréttamanna, öðru stéttarfélagi, svo verkfallsaðgerðin mun hafa minni áhrif á vef Ríkisútvarpsins.
Náist ekki samningar á næstunni munu blaðamenn sem starfa við Fréttablaðið og Morgunblaðið leggja niður störf fimmtudaginn 28. nóvember.

„Það er með ólíkindum að það sé að slitna upp úr,“ sagði Hjálmar Jónsson, formaður Blaðamannafélags Íslands í samtali við Vísi í gærkvöldi. Hann segir að félagið hafi móttekið tilboð SA og gert gagntilboð sem Hjálmar segir að hafi að fullu verið innan ramma Lífskjarasamningsins svokallaða og innan kostnaðarútreiknings þess tilboðs sem lá til grundvallar tilboði SA.
Hjálmar segir það mikil vonbrigði að upp úr hafi slitnað og að það stefni í þriðju vinnustöðvunina á morgun. Ekki er búið að boða til nýs fundar en reiknar Hjálmar með að fundað verði aftur í næstu viku, fyrir fjórðu vinnustöðvunina.
Þá liggi það einnig fyrir hjá Blaðamannafélaginu að útfæra og greiða atkvæði um frekari verkfallsaðgerðir í desember, en samþykkt var í október að fara í fjórar vinnustöðvanir í nóvember.
Blaðamannafélagið mun halda fund í hádeginu með félagsmönnum þar sem farið verður yfir stöðu mála í kjaradeilunni.

„Það náðist ekki að ná í kjarasamning í dag. Það er ennþá of mikið á milli,“ segir Halldór.
Aðspurður um orð Hjálmars um að Blaðamannafélagið upplifi lítinn sem engann samningsvilja af hálfu Samtaka atvinnulífsins í viðræðunum vísaði hann í að SA hafi náð samkomulagi við 97 prósent viðsemjanda félagsins á almennum markað.