Hlýindi og rigning taka við á morgun Kristín Ólafsdóttir skrifar 30. nóvember 2019 08:09 Á morgun tekur að hlýna í veðri og bætir í rigningu. Vísir/vilhelm
Í dag er útlit fyrir slyddu- eða snjóél víða á landinu en horfur eru á þurru veðri um landið suðaustan- og austanvert. Allvíða verður frostlaust með ströndinni, en frost inn til landsins. Þá má búast við vestlægri átt á landinu, víða á bilinu 5-10 m/s, að því er fram kemur í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands. Á morgun bætir í vind úr suðri, það hlýnar og fer að rigna. Strekkingur verður víða „en á stöku stað nær sunnanáttin sér betur á strik og má til dæmis búast við hvassviðri á norðanverðu Snæfellsnesi seinnipartinn,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Þurrt verður norðaustan- og austanlands og hitinn undir frostmarki fram eftir degi, „enda styrkur sunnanáttarinnar á þeim slóðum ekki nægur til að blása kalda loftinu burt sem þar liggur fyrir.“ Á mánudag er svo útlit fyrir áframhaldandi sunnanátt með vætu og hlýnar enn frekar á landinu.Veðurhorfur á landinu næstu dagaÁ sunnudag:Gengur í sunnan 8-15 m/s með rigningu, en hvassara á norðanverðu Snæfellsnesi. Hægari vindur norðaustan- og austanlands og þurrt að kalla. Hlýnar í veðri, hiti 4 til 8 stig undir kvöld, en kringum frostmark norðaustantil.Á mánudag:Sunnan og suðvestan 10-18 með rigningu og súld, en úrkomulítið á Austurlandi. Hiti 6 til 12 stig.Á þriðjudag:Suðlæg átt og víða rigning eða slydda. Vestlægari seinnipartinn á vestanverðu landinu með éljum og kólnar.Á miðvikudag:Hvöss suðvestan- og vestanátt með éljagangi, en bjartviðri á austanverðu landinu. Hiti um og undir frostmarki.Á fimmtudag:Vestlæg eða breytileg átt og dálítil él, en rigning eða slydda syðst á landinu og áfram bjart austanlands. Hiti kringum frostmark.Á föstudag:Útlit fyrir norðanátt með snjókomu eða éljum, en léttir til sunnanlands síðdegis. Hiti rétt undir frostmarki.
Veður Mest lesið Biður Jón afsökunar Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Erlent Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Innlent Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Erlent Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Innlent Fleiri fréttir Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Sjá meira