Eins og að sofa undir skýi Dún og fiður kynnir 16. desember 2019 13:45 Anna Bára Ólafsdóttir, eigandi Dún og fiður. Bjarki Logason „
Hlýrri gjöf en dúnsæng er varla hægt að gefa þeim sem þér þykir vænt um. Að sofa við snjógæsadúnsæng er eins og að sofa undir skýi,“ segir Anna Bára Ólafsdóttir, eigandi Dún og fiður. Sængur og koddar eru nú á sérstöku jólatilboði en Dún og fiður hefur framleitt og selt dúnsængur í sextíu ár. Verslunin er fjölskyldufyrirtæki og er Anna Bára þriðji ættliður sem stýrir fyrirtækinu. „Afi minn og amma stofnuðu fyrirtækið árið 1959 og allar götur síðan höfum við verið í framleiðslu og endurnýjun á dúnsængum og koddum og fleiri dúnvörum,“ segir Anna Bára. „Við notum snjógæsa-, svana- og andadún í vörurnar okkar. Snjógæsa- og svanadúnsængurnar eru með 1000 gramma fyllingu og andadúnsængurnar með 1100 gramma fyllingu. Þær eru hlýjar, loftmiklar og mjúkar. Ungbarnadúnsængurnar eru fylltar snjógæsadún og svanadún og njóta mikilla vinsælda hjá okkur.“ Dúnsæng er langtímaeign„Við endurnýjum sængur, bæði þær sem fólk hefur keypt hjá okkur og einnig það sem kemur annarsstaðar frá, endurnýjum verin og hreinsum dúninn svo sængin verður eins og ný. Líftími dúnsins er frá 18 til 20 + ár og líftími versins er 8 til 12 ár, eftir því hvernig það er meðhöndlað. Þá er hægt að skipta um ver og bæta þá 100 til 200 grömmum við dúninn í sængum frá okkur, en yfirleitt þarf að bæta meira við í aðrar sængur,“ segir Anna Bára.Dúnfyllt hringpulla og mjúkir sokkarFalleg rúmföt og dúnsokkar eru góðar gjafir undir jólatréð og þá nýtur dúnfyllt hringpulla mikilla vinsælda. „Hringpullan okkar er mjög vinsæl og sjúkraþjálfarar mæla með henni,“ útskýrir Anna Bára. „Þeir kaupa hana margir hjá okkur og hafa á stofum hjá sér. Sjúkraþjálfarar hafa einnig mælt með að fólk fái sér snjógæsadúnkoddann. Við eigum til hlýja dúnsokka fyrir bæði börn og fullorðna sem eru kjörnir til gjafa og þá eigum við til úrval af gæða rúmfatnaði sem við látum framleiða fyrir okkur úr 400 þráða egypskri bómull og eigum einnig til rúmföt úr damaski.“ Sjá nánar á vefsíðunni dunogfidur.is Þessi kynning er unnin í samstarfi við Dún og fiður.
Hús og heimili Jól Mest lesið Ekki allt sem sýnist í Coldplay-skandalnum Lífið Í þrjátíu ára gömlum fötum af mömmu Tíska og hönnun Unnsteinn Manuel og Ágústa selja hvíta miðbæjarperlu Lífið Endurheimti lífsgleðina við gerð ostabakkanna Lífið Umdeild mormónadrottning nýja piparjónkan Lífið Ástrós Trausta, John Legend og Bæjarins Beztu í Kjós Lífið „Pabbi minn gaf okkur saman“ Lífið Leikari, óperusöngvarar og sjómaður vilja stýra óperunni Menning Leifur Andri og Hugrún selja íbúðina í Garðabæ Lífið Tískan við þingsetningu: Þjóðlegur þriðjudagur Tíska og hönnun Fleiri fréttir Þykkari augnhár og augabrúnir – vísindin á bak við UKLASH Opnunarhátíð í Ríteil Kids „við erum að drukkna í fötum“ Hætti að þurfa að ryksuga upp hárin eftir hverja sturtu Ný svefnlína sem hjálpar þér að sofna, sofa og vakna hress! Með stimpil upp á ekta spænska matarmenningu Með stimpil upp á ekta spænska matarmenningu Er hárið skemmt eða bara þurrt? Opna Preppbarinn í Keflavík og bjóða 50% afslátt Stjörnum prýdd dagskrá Bylgjunnar í Hljómskálagarðinum Stöðugt á ferð og flugi með sterkari skrokk Víkurverk hefur allt fyrir ferðalagið og meira til Hver dáleiðsla er spennandi og ófyrirsjáanlegt ferðalag Fann lausn við verkjunum sem breytti öllu Egill, Valgeir og Sigurður Bjóla saman á sviði í fyrsta sinn síðan 1976 Sjá meira