Draumadesembermánuður fyrir Bobby Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 27. desember 2019 14:30 Bobby Firmino fagnar með knattspyrnustjóranum Jürgen Klopp í gær. Getty/Andrew Powell
Brasilíumaðurinn Roberto Firmino var enn á ný á skotskónum með Liverpool í gærkvöldi en þetta hefur verið frábær jólamánuður fyrir þennan 28 ára leikmann. Roberto Firmino sem er oftast kallaður Bobby var maðurinn á bak við sigur Liverpool í heimsmeistarakeppni félagsliða og eftir tvennu hans í gær er Liverpool komið með þrettán stiga forystu á toppi ensku úrvalsdeildarinnar. Bobby Firmino skoraði bæði sigurmarkið í undanúrslitaleik HM félagsliða sem og í úrslitaleiknum þar sem sigurmarkið hans á móti Flamengo kom ekki fyrr en í framlengingunni. Scored the winner in the CWC semifinal Scored the winner in the CWC final Scored 2 vs. Leicester Bobby Firmino’s been lighting it up. pic.twitter.com/MHlKlQtgXn— ESPN FC (@ESPNFC) December 26, 2019 Þeir sem höfðu áhyggjur af því að sigur Liverpool í heimsmeistarakeppni félagsliða myndi trufla liðið í fyrsta leik eftir heimkomuna gátu ekki haft meira rangt fyrir sér. Roberto Firmino skoraði fyrsta og þriðja markið í 4-0 sigri á Leicester City sem er samt áfram liðið í öðru sæti ensku úrvalsdeildarinnar, þrettán stigum á eftir Liverpool. Bobby Firmino var kominn með 4 mörk í 25 leikjum fyrir þessa þrjá síðustu leiki þar sem hann hefur skorað fjögur mörk. Not a bad week, Bobby 3️ Games 4️ Goals 1️ Club World Cup medal pic.twitter.com/rRHATz2Ogu— Liverpool FC (@LFC) December 27, 2019 Hann hefur því skorað jafnmörg mörk á síðustu níu dögum og hann gerði á fyrstu 135 dögum tímabilsins. Á öllu tímabilinu í fyrra þá var Bobby Firmino með 16 mörk í 48 leikjum í öllum keppnum þar af 12 mörk í 34 deildarleikjum og 4 mörk í 12 leikjum í Meistaradeildinni. Eina þrenna hans í fyrra kom líka í desember eða þegar hann skoraði þrjú mörk í 5-1 sigri á Arsenal 29. desember 2018.
Enski boltinn Mest lesið „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Enski boltinn Til í að taka skóna af hillunni fyrir Barcelona Fótbolti Dagfarsprúði maðurinn aldrei verið eins reiður Sport Madrídingar á tæpasta vaði Fótbolti Naumur sigur dugði City Enski boltinn Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Körfubolti Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Enski boltinn Stöðvuðu bardaga Valgerðar Sport Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu Enski boltinn Davíð Snær skoraði gegn toppliðinu Fótbolti Fleiri fréttir „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Naumur sigur dugði City Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu Fyrrum lögmaður Trump vill í enska boltann Tímabilið búið hjá Rodri? Bandaríkjamenn að eignast Everton Haaland ekki refsað BBC gefur í skyn að draumur Freys gæti ræst Keane segir Arteta að taka lyfin sín Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Þrjú rauð á loft þegar Brighton og Forest gerðu jafntefli „Allir vilja að við verðum þurrkaðir af yfirborði jarðar“ „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Willum Þór gaf stoðsendingu Fulham fyrst til að vinna Newcastle og dramatík í Birmingham og Southampton Spurs vann þrátt fyrir að lenda undir eftir hálfa mínútu Díaz með tvö og Liverpool tyllti sér á toppinn Jackson í stuði þegar Chelsea fór létt með West Ham Endurkoma hjá Dagnýju Pössuðu að leikmenn Fulham væru aldrei einar með Al Fayed Segir að Rashford hafi tekið lífsstílinn í gegn Ferguson saknar fótboltans Alisson tæpur fyrir leikinn gegn Bournemouth Segir Arsenal sífellt betra en vill engar ásakanir um sálfræðistríð Alexander-Arnold reynir að kaupa Nantes Með tvær ferðatöskur af fíkniefnum Sjá meira