Mótmæli í Kænugarði þegar fangaskipti fóru fram Kjartan Kjartansson skrifar 30. desember 2019 11:12 Úkraínumaður faðmar ástvin eftir að honum var sleppt í gær. Fangaskiptin fóru fram í borginni Horvlika í Donetsk-héraði. Vísir/EPA
Úkraínsk stjórnvöld og uppreisnarmenn hliðhollir Rússum í austanverðu landinu skiptust á 200 föngum í gær. Samið var um skiptin í viðræðum rússneskra og úkraínskra stjórnvalda sem fóru fram fyrr í þessum mánuði. Lausn uppreisnarmanna var mótmælt í höfuðborginni Kænugarði. Uppreisnarmenn afhentu úkraínskum stjórnvöldum 76 fanga og á móti skiluðu þau 124 uppreisnarmönnum, að sögn breska ríkisútvarpsins BBC. Volodýmýr Zelenskíj, forseti Úkraínu, segir að alls hafi 81 úkraínskum fanga verið sleppt. Átökin í austanverðri Úkraínu hófust í kjölfar þess að Rússar innlimuðu Krímskaga árið 2014. Um 13.000 manns hafa fallið í átökunum á milli úkraínska stjórnarhersins og uppreisnarmanna sem njóta stuðnings Rússa. Ekki voru allir sáttir við fangaskiptin nú. Aðgerðasinnar lokuðu þannig útgangi fangelsisins í Kænugarði þar sem nokkrum uppreisnarhermönnunum var haldið. Þeir eru andsnúnir því að fyrrum liðsmönnum Berkut, úkraínsku óeirðarlögreglunnar sem er sökuð um að hafa myrt 48 manns í lýðræðismótmælum í febrúar árið 2014, verði sleppt úr haldi. Ríkissaksóknari Úkraínu segir að sakborningar í málum þurfi að koma fyrir dómara þrátt fyrir að þeim verði sleppt nú.
Rússland Úkraína Mest lesið Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Innlent Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Innlent „Mér finnst það alvarlegt“ Innlent Kveiksþætti kippt út tímabundið Innlent Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis Innlent Engar vísbendingar og lítið af upplýsingum Innlent Hljóta dóm fyrir að kveikja í Teslu lögreglumanns eftir allt saman Innlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Íslendingar losa meira en Evrópubúar í langflestu Innlent Sveik hundruð þúsunda af vistmanni á Grenilundi Innlent Fleiri fréttir Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Sjá meira