Foreldrar að klúðra leiðtogatækifærum barna sinna Rakel Sveinsdóttir skrifar 12. maí 2020 09:00 Þessir foreldrar gefa barninu sínu of mikinn tíma og vilja vera vinur þess. Vísir/Vilhelm
Rannsóknir sýna að foreldrar sem ofvernda börnin sín eru óafvitandi að draga úr tækifærum þeirra til að gegna leiðtogahlutverki síðar á ævinni. Afleiðingar uppeldisins eru meðal annars þær að þegar barnið er orðið fullorðið hefur það ekki nægilega trú á sinni eigin getu, á erfitt með að takast á við erfiðar aðstæður, sjálfstraustið er of lítið og hæfnin til að leiða aðra minni en annars hefði þurft að vera. Já, tækifærin geta hreinlega tapast vegna mömmu og pabba! En hvað einkennir þessa foreldra? Dr. Judith Locke er klínískur sálfræðingur og sérfræðingur í velferð barna. Hún lýsir þessum foreldrum í umfjöllun BBC á eftirfarandi hátt: Þetta eru foreldrarnir sem eru fljótir til að hlaupa til ef eitthvað bjátar á. Þeir trúa því að barnið þeirra hafi alltaf rétt fyrir sér. Þessir foreldrar gera allt sem þeir geta fyrir barnið sitt (frekar en að trúa því sjálfir að barnið geti bjargað sér sjálft). Þessum foreldrum finnst í raun að aðrir ættu að beygja sig undir þarfir barnsins síns. Þetta eru krefjandi foreldrar og með mjög miklar væntingar um frammistöðu barnsins síns. Þessir foreldrar gefa barninu sínu mjög mikinn tíma, vilja vera vinur þeirra og helst í stöðugu sambandi við það. Dæmi um rannsóknir Áhrif uppeldis á leiðtogafærni barna á fullorðinsárum hefur verið rannsakað nokkuð. Í fyrrgreindri umfjöllun BBC er sagt frá rannsókn sem gerð var í Bejing í Kína. Spurningarkönnun var lögð fyrir 1500 nemendur á unglingastigi. Meðal spurninga sem nemendur svöruðu voru spurningar um hvort foreldrar þeirra væru vanir að fylgja þeim eftir í einu og öllu eða hvort foreldrar þeirra væru gjarnir á að stíga inn í aðstæður þegar eitthvað bjátaði á. Þá var spurt um sjálfsöryggi og hvaða trú nemendur hefðu á sinni eigin leiðtogafærni. Könnun var jafnframt lögð fyrir foreldra nemenda og kennara þeirra og þar reynt að draga fram hvaða trú foreldrar og kennarar hefðu á leiðtogafærni unglinganna. Börn og ungmenni vöktu mikla athygli á síðasta ári í baráttu sinni fyrir betri framtíð. Aðgerðarleysi í loftslagsmálum var mótmælt á hverjum föstudegi.Vísir/Vilhelm Niðurstöður sýndu skýr merki þess að þeir nemendur sem voru ofverndaðir af foreldrum sínum, voru mun ólíklegri til að vera í einhverju leiðtogahlutverki. Til dæmis í hópaverkefnum, í bekknum eða einhverju öðru skólatengdu starfi. Einkenni þessara barna var einnig lágt sjálfsmat. Þá vakti það athygli að þessi börn þóttu af öðrum ólíklegri til að geta staðið undir leiðtogahlutverki. Svipuð rannsókn var framkvæmd í Háskólanum í Flórída í Bandaríkjunum. Þar voru um 500 nemendur þátttakendur. Niðurstöður sýndu ótvírætt að nemendur sem voru of verndaðir af foreldrum sínum, voru með minna sjálfstraust en aðrir og þar með ólíklegri til að geta gegnt leiðtogahlutverki. Það sama sýndi sambærileg rannsókn sem framkvæmd var á nemendum í háskólanum í Miami í Flórída. Vísir/Vilhelm Hvernig getur ungt fólk snúið þessari þróun við? Locke segist sannfærð um að fullt af ungu fólki er að samsvara sig við þessar niðurstöður. Það viti að í æsku voru þau ofvernduð af foreldrum og skynji að uppeldið er nú að draga úr tækifærum þeirra í starfi. Mikilvægast fyrir þennan hóp að falla ekki í gryfju reiði og gremju en í rannsóknum má sjá merki þess að neikvætt viðhorf gagnvart foreldrum sínum er nokkuð algengt á meðal einstaklinga sem telja foreldra hafa ofverndað sig. Locke segir hins vegar að enginn þurfi að efast um að foreldrunum hafi í rauninni gengið gott eitt til. Aðalmálið er að huga að því, hvernig er hægt að snúa vörn í sókn. Það sé vel mögulegt með smá vinnu og fyrirhöfn. Það fyrsta sem þessi hópur þurfi að gera er að mynda ákveðna fjarlægð við foreldra sína og ná betri tökum á sínu eigin lífi. Oft sé staðan sú að foreldrar þessara einstaklinga séu enn mikið að skipta sér af. Með því að öðlast sjálfstæði og óhæði frá foreldrum sínum, þjálfa viðkomandi einstaklingar sig í eigin færni til að taka ákvarðanir, að takast á við aðstæður og efla sjálfsöryggi sitt. Í vinnunni er einnig hægt að vinna í smá breytingum. Eitt er til dæmis að kalla oftar eftir viðbrögðum og endurgjöf frá samstarfsfélögum. Þar með talið að læra að takast á við gagnrýni og vera opin fyrir hugmyndum annarra. Þetta segir Locke mikilvægt því ein af afleiðingum of verndunar í uppeldi er að stundum hefur fólki verið gert of hátt undir höfði fyrir eiginleika og getu sem ekki er innistæða fyrir. Afleiðingin sé í raun röng sjálfsmynd. Ekkert breytist þó á einnig nóttu segir Locke. Aðalmálið er að hefja vinnuna því aukið sjálfstæði og meira sjálfsöryggi verður alltaf af hinu góða. Áður en fólk veit af er það jafnvel farið að sjá sjálfan sig í hlutverki yfirmanns.
Góðu ráðin Stjórnun Mest lesið Sorglegt að þurfa að hætta rekstri eftir 38 ár í Hveragerði Viðskipti innlent Starbucks opnaði á Laugavegi í dag Viðskipti innlent Trausti Sigurður og Jóhanna nýir forstöðumenn hjá VÍS Viðskipti innlent Krefja nýjan rektor um að skólinn fari að lögum Viðskipti innlent Svikarar nýti sumarfrí til að blekkja fyrirtæki til að millifæra háar upphæðir Viðskipti innlent Oft slegist um innstungurnar á tjaldsvæðunum Neytendur Minnstu sparisjóðirnir sameinast Viðskipti innlent Ná að spara hver mánaðarmót en hvað svo? Viðskipti innlent Sjónvarpsstöðin Sýn verður í opinni dagskrá Viðskipti innlent Spá 2,2 prósent hagvexti í ár Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ekki flaska á að undirbúa sumarfríið þitt í vinnunni Samruni fyrirtækja: „Það sem ekki þarf að vera leyndarmál er ekki leyndarmál“ Bankastjóri Íslandsbanka: „Ég samdi við Brynju strax á fyrsta alvöru stefnumótinu...“ Framkvæmdastjóri í góðri æfingu með brandara og hrekki Fordómar: „Mætti halda að á Íslandi væri ekkert sölustarf til“ „Þarf lítið til að koma mér af stað í söng og stemningu“ Að leysa hratt og vel úr málum í stað þess að pirrast Milljónavirði af gini á víðavangi og búið til með íslensku veðri Bissnessinn í tónlist: „Þetta er ekki lengur eins og þetta var í gamla daga“ Á erfitt með að tapa fyrir eiginmanninum í skrafli Að takast á við sjokkerandi breytingar í vinnunni Mjög mikilvægt að eiga besta vin í vinnunni Bolabítur á buxnaskálm: Fjöldi „kerfisfræðinga“ að misnota veikindaréttinn „Ég hef þó aldrei kunnað vel við titilinn framkvæmdastjóri“ Fjórar týpur af yfirmönnum sem eru sjálfir að drukkna í vinnu Segir mun á launum stjórnarmanna sláandi Íslenskir kvenstjórnendur: Bjartsýnar en með áhyggjur af stríði Lausnamiðuð ferilskrá og að þora Sjá meira