Atvinnulíf

Kólnun fram­undan: Það hættu­lega við að vera á góðum launum

Rakel Sveinsdóttir skrifar
Það er ekki bara veðrið eða kuldaboli sem mun láta til sín taka í vetur. Gera má ráð fyrir uppsögnum og hagræðingum hjá fyrirtækjum í kólnandi hagkerfi.
Það er ekki bara veðrið eða kuldaboli sem mun láta til sín taka í vetur. Gera má ráð fyrir uppsögnum og hagræðingum hjá fyrirtækjum í kólnandi hagkerfi. Vísir/Vilhelm

Á uppgangstímum er lögmálið einfalt: Þeir sem standa sig best, taka að sér flóknustu verkefnin og semja um hæstu launin uppskera ríkulega. Þetta er æðislegur tími.

Skilar sér reyndar oft í þenslu og jafnvel öfgum eins og fyrir bankahrun. En góður tími samt.

Þegar kólnar í hagkerfinu breytast leikreglurnar skyndilega. Því þá getur það að vera á góðum launum – háum launum – jafnvel verið svolítið „hættulegt“.

Þetta sýna rannsóknir, bæði vestanhafs og í Evrópu.

Í umfjöllun Harvard Business Review um stjórnun í niðursveiflum kemur til dæmis fram að fyrirtæki taki oft og iðulega þá ákvörðun að skera niður launahæsta starfsfólkið – sjá þannig ávinninginn af niðurskurðinum strax. Í sömu umfjöllun kemur reyndar fram að oft er þetta skammvinnur vermir. Því fyrirtæki missa þekkingu, reynslu og hæfni sem á endanum skilar sér ekki.

80/20 reglan er líka þekkt. Þar sem hærra launað starfsfólk missir vinnuna því talið er að lægra launaður starfsmaður geti leyst 80% af starfi viðkomandi fyrir helmingi lægri upphæð.

Í greiningum OECD fyrir evrópskan vinnumarkað kemur fram að þegar fyrirtæki skera niður eiga þau til að fletja út skipuritið og spara með því að segja upp millistjórnendum og sérfræðingum.

Á meðan nýtur starfsfólk á hóflegri eða lægri launum oft óbeinnar verndar. Launakostnaður þeirra vegur minna í heildarmyndinni og uppsögn þeirra skilar litlum sparnaði miðað við það rask sem hún skapar í daglegum rekstri. Hér skal þó taka fram að á heildina litið er það þó oft meiri fjöldi láglaunaðra sem missir starfið á samdráttarskeiðum.

Nú erum við hins vegar að tala um þann hóp sem er á góðu laununum. Sem allir vilja auðvitað vera á.

Eða er kannski meira öryggi í því fólgið að vera á hóflegri launum en háum?


Tengdar fréttir

Meira um at­vinnu­leysi: „Tækifærin eru líka mörg á lands­byggðinni“

Að sögn Geirlaugar Jóhannsdóttur, ráðgjafa og stjórnendamarkþjálfa hjá Hagvangi, eru um átta þúsund manns í atvinnuleit í augnablikinu. Sá hópur sem telur til fólks sem hefur verið án atvinnu í meira en 12 mánuði telur að jafnaði innan við tvö þúsund manns. Enda atvinnuleysi almennt lágt hlutfallslega á Íslandi miðað við víða erlendis.

„Starfsfólkið sem eftir er vegnar oft verr andlega heldur en fólkinu sem hættir“

„Rannsóknir sýna að starfsfólkið sem eftir er vegnar oft verr andlega heldur en fólkinu sem hætti störfum í kjölfar uppsagnar,“ segir Hilja Guðmundsdóttir ráðgjafi hjá Mental ráðgjöf og sérfræðingur í mannauðsstjórnun. Og er þar að vísa í það sem getur gerst á vinnustað, eftir hópuppsagnir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×