Staðfesta brottrekstur Inga: Bauðst annað starf sem hann hafnaði Anton Ingi Leifsson skrifar 10. maí 2020 14:40 Ingi Þór var fyrst og síðast ánægður með dugnað sinna manna. vísir/bára
KR er búið að reka Inga Þór Steinþórsson, þjálfara liðsins í Dominos-deild karla. Þetta staðfestir Böðvar Guðjónsson, formaður körfuknattleiksdeildar KR, í yfirlýsingu sem var send fjölmiðlum fyrr í dag. Ingi tók við liðinu fyrir tveimur árum. Hann varð Íslandsmeistari með liðið á sínu fyrsta ári en tímabil númer tvö var, eins og kunnugt er, blásið af vegna kórónuveirunnar. Í yfirlýsingunni segir að Inga Þór hafi verið boðið annan starf innan félagsins en því hafi hann afþakkað. „Körfuknattleiksdeild KR hefur sagt Inga Þór Steinþórssyni upp störfum sem þjálfara meistaraflokks karla. Félagið bauð Inga Þór starf yfirmanns körfuboltamála hjá KR, en Ingi Þór starfaði einnig sem yfirþjálfari yngriflokka KR,“ segir í yfirlýsingunni. „Ingi Þór hefur afþakkað starfið. Körfuknattleiksdeild KR þakkar Inga Þór fyrir samstarfið sem þjálfari liðsins undanfarin tvö ár og óskar honum góðs gengis í þeim verkefnum sem hann tekur sér fyrir hendur.“ Vísir greindi frá því fyrr í vikunni að orðrómur væri um að búið væri að segja Inga upp störfum og Darri Freyr Atlason, uppalinn KR-ingur sem hefur stýrt liði Vals í Dominos-deild kvenna, sé að taka við starfinu. Ekki hefur verið staðfest hver tekur við keflinu hjá Vesturbæjarstórveldinu sem hefur orðið Íslandsmeistari sex ár í röð. Uppfært 15.12: Böðvar Guðjónsson, formaður kkd. KR, gaf ekki kost á sér í viðtal en rætt verður við Inga Þór á Vísi síðar í dag.
Dominos-deild karla KR Mest lesið Beta aldrei upplifað annað eins Fótbolti „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Körfubolti Fyrirliði Japans missir af HM og hættir í landsliðinu Fótbolti Grét af gleði þegar Mexíkó byrjaði HM á sigri á níu Suður-Afríkubúum Fótbolti Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Körfubolti Fær einn lokaséns eftir áfall á Spáni: „Ég var bara mjög hrædd“ Sport Bestu-deildarpar á von á barni saman Íslenski boltinn „Hún er gjörsamlega niðurbrotin“ Sport Frétti fyrst á samfélagsmiðlum að hann væri að missa vinnuna Enski boltinn Heimsendi HM-dómarinn fær að dæma úrslitaleik Fótbolti Fleiri fréttir Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Sjá meira