Myndaveisla: Á fimmta þúsund manns á stórleik KR og Víkings Á fimmta þúsund manns gerðu sér ferð á Meistaravelli í kvöld til þess að fylgjast með stórleik KR og Víkings Reykjavíkur í Bestu deild karla í fótbolta. Leikurinn hin mesta skemmtun, taugarnar þandar og dramatíkin mikil í leikslok. Íslenski boltinn 1.9.2026 23:02
„Það er hrikalegt að sjá þetta“ „Ég finn virkilega mikið til með honum,“ sagði Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Víkings, eftir að enn einn leikmanna hans meiddist í kvöld þegar Sveinn Gísli Þorkelsson handleggsbrotnaði í stórleiknum gegn KR. Íslenski boltinn 1.9.2026 21:32
„Í gær var ég að æfa nákvæmlega sama skot“ Ármann Ingi Finnbogason skoraði stórkostlegt mark fyrir Víkinga gegn KR í kvöld og þó að það hafi ekki dugað til sigurs átti hann sinn þátt í því að nú eru Víkingar með átta stiga forskot á toppi Bestu deildarinnar. Íslenski boltinn 1.9.2026 21:15
Ummæli Arons ekki svaraverð: „Ekki mikið vit í því sem hann er búinn að vera segja“ Íslenski boltinn 1.9.2026 21:06
„Þetta er síðasti séns fyrir KR-inga“ „KR-ingar verða að vinna þennan leik og maður er skíthræddur um það líka að við gætum séð það sama gerðist á þessu tímabili og gerðist í fyrra eftir að Víkingar duttu út úr leik í Evrópu. Að ef þeir klári þennan leik þá bara vinni þeir bara einfaldlega rest, þannig að þetta er síðasti séns fyrir KR-inga og fyrir þessa hlutlausu, að fá einhverja spennu í deildina fyrir skiptinguna góðu,“ segir Albert Brynjar Ingason sérfræðingur Sýnar Sports í hádegisfréttum Bylgjunnar fyrir stórleikinn í kvöld. Íslenski boltinn 1. september 2026 13:31
Ekki eitthvað sem Víkingur stendur fyrir Stjórn knattspyrnudeildar Víkings harmar skemmdarverk sem unnin voru á Meistaravöllum, heimavelli KR, í aðdraganda leiks liðanna í Bestu deild karla í fótbolta síðdegis. Íslenski boltinn 1. september 2026 12:44
Framkvæmdastjórinn þrífur upp skemmdarverkin Verkefnalisti starfsfólks KR lengdist heldur í morgun þegar skemmdarverk blöstu við í stúkunni að Meistaravöllum. Að nægu er að huga þennan þriðjudaginn. Íslenski boltinn 1. september 2026 12:15
Skemmdarverk unnin á KR-vellinum Hún var ekki glæsileg aðkoman hjá starfsmönnum KR-vallarins er þeir mættu í vinnuna í morgun. Íslenski boltinn 1. september 2026 10:26
Allt klárt á Meistaravöllum fyrir pallaleikinn í kvöld KR-ingar taka á móti Víkingum í stórleik tímabilsins í Bestu-deildinni hingað í kvöld. Búið er að gera ráð fyrir mörg þúsund manns á leikinn sem hefst klukkan 17:30. Víkingar eru fyrir leikinn átta stigum fyrir ofan KR. Liðin eiga eftir að mætast í tvígang, það liggur fyrir. Íslenski boltinn 1. september 2026 10:06
Systurnar báðar með tvö mörk á Ásvöllum og KR upp í annað sætið KR komst upp í 2. sæti Lengjudeildar kvenna með 3-5 sigri á Haukum á Ásvöllum í kvöld. Systurnar Kara og Katla Guðmundsdætur skoruðu báðar tvö mörk fyrir KR-inga. Íslenski boltinn 28. ágúst 2026 22:39
Styðja við börn með krabbamein: Arnór í búningi Rice á fyrsta Treyjudeginum Hverjar eru uppáhaldstreyjur Arnórs Ingva Traustasonar og Arons Sigurðarsonar? Þeir munu líkt og aðrir leikmenn og dómarar í Bestu deildum karla og kvenna ganga inn á völlinn í næsta leik í sinni uppáhaldstreyju, til að sýna börnum með krabbamein stuðning. Fótbolti 28. ágúst 2026 11:02
„Þeir eru að fara í Evrópuleik bara til að halda klúbbnum á floti“ Víkingur er 3-1 undir í einvíginu fyrir seinni leikinn við Borac Banja Luka í umspili Sambandsdeildarinnar í kvöld. Um hálfur milljarður er undir og það hlakkar í andstæðingum Víkings hér heima fyrir að sjá liðið í þessari erfiðu stöðu. Fótbolti 27. ágúst 2026 10:00
Ætlar að rústa markametinu og skora 30 mörk Knattspyrnumaðurinn Aron Sigurðarson hefur skorað 20 mörk í tuttugu leikjum á tímabilinu með KR. Markametið er innan seilingar en hann ætlar að skora þrjátíu mörk. Íslenski boltinn 25. ágúst 2026 10:01
Kom inn á fyrir KR aðeins 14 ára Oktavía Gunnarsdóttir spilaði sinn fyrsta meistaraflokksleik síðasta laugardag þegar hún kom inn á fyrir KR gegn FHL í Lengjudeild kvenna. Hún er nýorðin 14 ára gömul. Íslenski boltinn 25. ágúst 2026 07:00
Átta marka veisla í fyrsta leik Eiðs Smára og Víkingsvélin mallar áfram Fimm leikir fóru fram í Bestu deild karla í fótbolta í gær. Eftirvænting var fyrir fyrsta leik Eiðs Smára Guðjohnsen sem þjálfari KA, fyrsti leikur í erfiðari kantinum gegn KR. Topplið Víkings Reykjavíkur tók þá á móti Val í Reykjavíkurslag. Sjáðu mörkin úr leikjum gærdagsins hér í fréttinni. Íslenski boltinn 24. ágúst 2026 09:02
„Aron er frábær leikmaður en ég vil samt fá meira frá honum“ Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR, var ánægður með að hafa sótt þrjú stig norður þegar lið hans sigraði KA 5-3 á Greifavellinum á Akureyri. Hann fór vel yfir leik dagsins skömmu eftir lokaflaut. Íslenski boltinn 23. ágúst 2026 21:30
Uppgjörið: KA - KR 3-5 | Aron með þrennu fyrir norðan KR vann öruggan 5-3 sigur á KA á Greifavellinum á Akureyri í 20. umferð Bestu deildar karla. Leikurinn var hin mesta skemmtun en staðan var 4-2 í hálfleik. Íslenski boltinn 23. ágúst 2026 20:30
„Fiðringurinn breyttist smá í að kúgast annað slagið“ KA beið lægri hlut gegn KR á Greifavellinum á Akureyri í dag í 20. umferð Bestu deildar karla í fjörugum leik. Lokatölur 5-3 en KR leiddi 4-2 í hálfleik. Eiður Smári Guðjohnsen kom inn í þjálfarateymi KA á dögunum og stýrði liðinu í fyrsta sinn í dag sem aðalþjálfari ásamt Hallgrími Jónassyni. Hann er ánægður með að vera mættur aftur á hliðarlínuna og fór yfir sína sýn á leikinn. Íslenski boltinn 23. ágúst 2026 20:29
Sara skoraði tvö og Haukar fóru upp í annað sætið Grótta er komin með annan fótinn upp í Bestu deild kvenna en gríðarleg spenna er um 2. sætið í Lengjudeildinni. Haukar, KR, HK og Selfoss keppast um það. Íslenski boltinn 22. ágúst 2026 18:43
BBC birtir innslag um sögulegt einvígi KR og Liverpool BBC hefur birt skemmtilegt innslag frá árinu 1964 þegar að KR mætti Liverpool í Evrópukeppni félagsliða. Kunnuglegum andlitum bregður fyrir, meðal annars Ellert B. Schram, þá leikmanni KR og Alberti Guðmundssyni, fyrsta atvinnumanni Íslands í knattspyrnu. Íslenski boltinn 21. ágúst 2026 14:30
Mögnuð þrenna Köru í Keflavík Kara Guðmundsdóttir skoraði einkar laglega þrennu þegar KR vann stórsigur á Keflavík, 1-5, suður með sjó í Lengjudeild kvenna í gær. Íslenski boltinn 19. ágúst 2026 14:30
Kara með þrennu fyrir KR og Tindastóll fallið KR gerði sig líklegra til að koma sér upp úr Lengjudeild kvenna með frábærum sigri á Keflavík í kvöld. Á sama tíma varð Tindastóll formlega fallið eftir tap gegn Haukum. Íslenski boltinn 18. ágúst 2026 20:02
Sjáðu glæsimark Gylfa, prjónaskap Hauks og KR skora tvö á mínútu Glæsileg mörk litu dagsins ljós í Bestu deild karla í fótbolta í gærkvöld, þegar þrír leikir fóru fram í 19. umferðinni, og má sjá þau á Vísi. Íslenski boltinn 17. ágúst 2026 08:30
„Við þurfum að læra í þessum heimi“ „Mér líður bara mjög vel. Þetta var skemmtilegur leikur og tilfinningin var að við hefðum átt að geta gert betur,“sagði Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR, eftir 3-3 jafntefli við Breiðablik í 19. umferð Bestu deildar karla í fótbolta. Hann vill sjá lið sitt læra að lifa í toppbaráttu þar sem hver leikur skiptir gríðarlega miklu máli. Íslenski boltinn 16. ágúst 2026 21:04
„Gott að bjarga sjálfum sér og verja þetta“ „Súrt, í hálfleik vorum við 3–1 undir en keyrðum vel á þetta í seinni. Við vorum svolítið fram og til baka en mér fannst við geta stolið þessu í lokin svo þetta er súrt núna,“ sagði Halldór Snær Georgsson, markvörður KR, í viðtali eftir 3-3 jafntefli við Blika í kvöld. Íslenski boltinn 16. ágúst 2026 20:53
Ummæli Arons ekki svaraverð: „Ekki mikið vit í því sem hann er búinn að vera segja“ Íslenski boltinn