Lífið

Harry Potter stjarna á von á sínu fyrsta barni

Andri Eysteinsson skrifar
Rupert Grint lék Ron Weasley í tíu ár
Rupert Grint lék Ron Weasley í tíu ár Getty/Sylvain Lefevre

Rupert Grint sem gerði garðinn frægan með hlutverki sínu í Harry Potter myndunum, á nú von á sínu fyrsta barni með kærustu sinni, leikkonunni Georgiu Groome.

Groome og Grint hafa verið í sambandi síðan árið 2011, sama ár og Grint lék hlutverk Ron Weasley í síðasta sinn í myndinni Harry Potter and the Deathly Hallows II. Hlutverk Ron Weasley var fyrsta hlutverk Grint og skaust hann á stjörnuhimininn strax árið 2001.

Groome hefur mest leikið í breskum kvikmyndum á borð við The Holding og The Great Ghost Rescue og hefur einnig leikið á sviði í heimalandinu.

Síðan að Harry Potter ævintýri Grint lauk hefur hann leikið í sjónvarpsþáttunum Sick Note og Servant auk kvikmynda á borð við Moonwalkers frá 2015 og tónlistarmyndbands Ed Sheeran við lagið Lego House.

View this post on Instagram

From a while ago...

A post shared by Rupert Grint (@rupsg30) on






Fleiri fréttir

Sjá meira


×