6.700 skráð dauðsföll af völdum Covid-19 í Guayas-héraði í Ekvador í apríl Atli Ísleifsson skrifar 17. apríl 2020 11:26 Guayaquil er þéttbýl borg þar sem stór hluti íbúa lifir undir fátæktarmörkum. EPA
Skráð dauðsföll af völdum Covid-19 í Ekvador eru nú 403, en samkvæmt nýjum tölum frá einu héraða landsins virðast þúsundir hafa látist. Talsmaður ríkisstjórnarinnar segir að 6.700 manns hafa látist í Guayas-héraði þar sem af er apríl. Á sama tímabili hafa að jafnaði þúsund manns látist í héraðinu, að því er fram kemur í frétt BBC. Guayaquil, fjölmennustu borg landsins, er að finna í Guayas-héraði, en kórónuveirufaraldurinn hefur leikið Guayas sérstaklega grátt samanborið við önnur héruð landsins. Fréttir hafa borist af því að íbúar hafi þurft að bíða í allt að fimm daga eftir að fulltrúar yfirvalda sæki lík látinna. Þannig hafa margir þurft að bregða á það ráð að geyma lík aðstandenda í lökum eða pokum á götum úti. Samkvæmt tölum frá heilbrigðisyfirvöldum í Ekvador hafa 14.561 látið lífið í Guayas-héraði frá upphafi marsmánaðar, þar sem skráð dauðsföll eru að jafnaði tvö þúsund í mánuði. Otto Sonnenholzer, varaforseti Ekvador, baðst fyrr í mánuðinum afsökunar á hægum viðbrögðum yfirvalda við heimsfaraldrinum. Guayaquil er þéttbýl borg þar sem stór hluti íbúa lifir undir fátæktarmörkum.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Ekvador Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Innlent „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Innlent Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Innlent Bein útsending: Hildur svarar fyrir uppsagnir Innlent „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Innlent Fleiri fréttir Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Sjá meira