Síðdegis mun vetur konungur minna á sig enn einu sinni Atli Ísleifsson skrifar 12. mars 2020 07:32 Spákort Veðurstofunnar fyrir hádegið eins og það leit út í morgun. Veðurstofan
Veðurstofan spáir norðaustan kalda eða stinningskalda víðast hvar á landinu í dag. Má búast við dálitlum éljum norðaustanlands, en annars úrkomulítið. Í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar segir að síðdegis muni vetur konungur þó enn einu sinni minna á sig þar sem þykkni upp og fer að snjóa suðvestanlands. „Snjókomubakkinn fikrar sig síðan norðaustur yfir landið í nótt og fyrramálið þannig að einhver ofankoma verður í öllum landshlutum. Eftir hádegi á morgun dregur úr úrkomu, en seinnipartinn verður komin norðanátt á landinu með éljum norðantil, en að sama skapi birtir til syðra. Úrkomunni fylgir skammvinn hlýnun, en hiti mun ná upp fyrir frostmark með suðurströndinni. Útlit er fyrir norðlæga átt og kólnandi veður á laugardaginn með éljum norðanlands en bjartviðri um landið sunnanvert. Léttskýjað og hægur vindur verður í öllum landshlutum á sunnudaginn, en á sunnudagskvöld fer að hvessa af suðri og hlýna þegar næsta lægð nálgast okkur með slyddu eða rigningu.“ Veðurhorfur á landinu næstu daga Á föstudag: Suðlæg átt, víða 8-15 m/s, en snýst í norðaustanátt síðdegis. Snjókoma með köflum í öllum landshlutum, en úrkomulítið sunnan og vestanlands eftir hádegi. Frost 0 til 8 stig, en frostlaust við suðurströndina yfir daginn. Á laugardag: Norðaustan 5-13 m/s. Dálítil él norðaustanlands annars úrkomulítið og allvíða bjartviðri síðdegis. Frost 2 til 12 stig. Á sunnudag: Hæg breytileg átt og bjartviðri en kalt í veðri. Gengur í sunnan 10-18 og þykknar upp með snjókomu vestantil seinnipartinn og dregur úr frosti. Á mánudag: Hvöss suðaustanátt með snjókomu eða slyddu en rigningu sunnan og suðaustanlands. Vestlægari vindur og él við suðurströndina um kvöldið en styttir upp norðantil. Yfirleitt frostlaust yfir daginn en kólnar aftur um kvöldið. Á þriðjudag: Útlit fyrir suðvestanátt með éljagangi um landið sunnan- og vestanvert, en þurrviðri norðaustanlands. Hiti um og undir frostmarki. Á miðvikudag: Útlit fyrir norðvestlæga átt og él í öllum landshlutum. Hiti breytist lítið.
Veður Mest lesið Biður Jón afsökunar Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Erlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Innlent Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Erlent Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Innlent Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Innlent Fleiri fréttir Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjá meira