Lögregla kölluð til vegna fjúkandi trampólína Sylvía Hall skrifar 24. maí 2020 18:06 Tvær bifreiðir urðu fyrir skemmdum í morgun vegna fjúkandi trampólína. Vísir/Vilhelm
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði í nógu að snúast í morgun og í dag. Alls voru 27 mál bókuð frá klukkan fimm í morgun og til 17 nú síðdegis. Um klukkan níu í morgun var óskað eftir aðstoð lögreglu vegna pars sem hafði látið greipar sópa á gistiheimili í miðborg Reykjavíkur. Munirnir voru endurheimtir eftir að konan fannst. Þá var ítrekað kvartað undan ónæði og hegðunar manns við veitingastað í miðborginni og var manninum vísað út. Þá var hann jafnframt beðinn um að koma ekki aftur á staðinn. Eftir hádegi í dag þurfti lögregla svo að aka konu heim til sín þar sem hún hafði verið ölvuð og til vandræða á veitingahúsi í Grafarvogi. Klukkan fimm í morgun var tilkynnt um slagsmál í Kópavogi þar sem vinir voru að rífast og slást. Báðir hlutu nokkra áverka en vildu ekki blanda lögreglu í málið. Fjúkandi trampólín var einnig á meðal verkefna lögreglu en rétt fyrir klukkan tíu barst tilkynning um að eitt slíkt hefði fokið í Hafnarfirði. Einn bíll varð fyrir skemmdum og var trampólínið fjarlægt. Snemma í morgun var annað samskonar mál í Mosfellsbæ og varð bifreið einnig fyrir skemmdum í það skiptið. Í hádeginu var tilkynnt um þjófnað í matvöruverslun í miðborginni. Sakborningur viðurkenndi brotið og var skýrsla tekin á vettvangi.
Lögreglumál Mest lesið Elduðu úti, óðu yfir vaktstjórann og fylltu matsalinn Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Tálbeitan var með einkabílstjóra og gisti á Edition Innlent Bauð leyniupptökur af spillingu í nafni ísraelsks njósnafyrirtækis Innlent Létu Staðarskála ekki duga og tóku yfir pitsustað Innlent Sagði að Þórdís myndi undirrita vegna tengsla Bjarna við Hval Innlent „Ásakanir Jóns Gunnarssonar eru rangar“ Innlent Ekki púað á Snorra Innlent Hátt í 400 kynlífsmyndböndum lekið í mögulegu samsæri Erlent „Ásakanir Svandísar í minn garð eru lygi frá rótum“ Innlent Fleiri fréttir Sóttvarnaraðgerðir „aldeilis ekki“ meiri en í Svíþjóð Bíll festist eftir aurskriðu við Dýrafjarðargöng Létu Staðarskála ekki duga og tóku yfir pitsustað Hrafnar opna lokaðan póstkassa eins og ekkert sé Fyrrverandi félagsmálaráðherra eigi eftir að svara í máli Yazans Hafi ekki sakað blaðamenn um hleranir: „Ég sagði það ekki og hef hvergi sagt það“ „Gæsahúð, án gríns“ Sagði að Þórdís myndi undirrita vegna tengsla Bjarna við Hval Leynilegar upptökur og hrafnar sem tæta í sig reikninga fólks Í gæsluvarðhald vegna alvarlegra ofbeldisbrota í Hafnarfirði Bauð leyniupptökur af spillingu í nafni ísraelsks njósnafyrirtækis Bein útsending: Tekist á um samgöngur í Norðvesturkjördæmi Hafa tilkynnt E. coli veikindin til Sjóvá Ók á sjö kindur og drap þær Ekki púað á Snorra „Ásakanir Svandísar í minn garð eru lygi frá rótum“ „Ásakanir Jóns Gunnarssonar eru rangar“ Elduðu úti, óðu yfir vaktstjórann og fylltu matsalinn Nauðsynlegt að sameinast um aðgerðir í jafnréttismálum Tálbeita á Edition og vegklæðning flettist af í Öxnadal Bein útsending: Heimsþing kvenleiðtoga Settur forstjóri skipaður forstjóri Sautján sóttu um embætti skrifstofustjóra fjármála Pallborðið: Hvaða lausnir bjóða flokkarnir? Fimm prósent segja innflytjendamálin mikilvægust Verðlaunuð fyrir að berjast gegn slúðri Tveir af fimm telja hvalveiðar veikja stöðu Íslands í alþjóðlegum viðskiptum Ósammála því að skoðanakannanir séu ekki nákvæmar Óvenju margar bilanir í götulýsingu í Kópavogbæ Tálbeitan var með einkabílstjóra og gisti á Edition Sjá meira