Innlent

Sau­tján sóttu um em­bætti skrif­stofu­stjóra fjár­mála

Atli Ísleifsson skrifar
Heilbrigðisráðuneytið er til húsa í Síðumúla í Reykjavík.
Heilbrigðisráðuneytið er til húsa í Síðumúla í Reykjavík. Stjr

Sautján hafa sótt um embætti skrifstofustjóra fjármála í heilbrigðisráðuneytinu en umsóknarfrestur rann út 28. október síðastliðinn.

Á vef ráðuneytisins segir að sérstök hæfnisnefnd, skipuð þremur einstaklingum, muni nú meta hæfni umsækjenda og skila greinargerð til heilbrigðisráðherra, sem skipar í starfið. 

Umsækjendur eru eftirtaldir:

  • Ari Sigurðsson, skrifstofustjóri
  • Ásgeir Runólfsson, staðgengill skrifstofustjóra
  • Ásta Huld Hreinsdóttir, skrifstofustjóri
  • Beta Dagný Hannesdóttir, starfsmaður á fjármálasviði
  • Bryndís Ásbjarnardóttir, forstöðumaður
  • Eyjólfur Örn Snjólfsson, framkvæmdastjóri
  • Fannar Karvel Steindórsson, framkvæmdastjóri
  • Geir Kristinsson, fjármálastjóri
  • Guðmann Ólafsson, staðgengill skrifstofustjóra
  • Gunnar Tryggvi Halldórsson, rekstrarstjóri
  • Inga Birna Einarsdóttir, sérfræðingur
  • Ingi Jóhannes Erlingsson, fjármála- og rekstrarstjóri
  • Jóhanna Lind Elíasdóttir, sérfræðingur
  • Katrín Anna Guðmundsdóttir, staðgengill skrifstofustjóra
  • Margrét Irma Jónsdóttir, verkefnastjóri
  • Páll Línberg Sigurðsson, rekstrarstjóri
  • Vilberg Haukur Hjartarson, þjónustufulltrúi



Fleiri fréttir

Sjá meira


×