Innlent

Telja sig hafa fundið manninn sem af­henti ung­lings­pilti hlaup­bangsana

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Tvær stúlkur voru fluttar meðvitundarlausar á sjúkrahús eftir að hafa innbyrt eitraða bangsana.
Tvær stúlkur voru fluttar meðvitundarlausar á sjúkrahús eftir að hafa innbyrt eitraða bangsana. Getty/Justin Sullivan

Lögreglan á Suðurnesjum telur sig hafa haft uppi á eldri manninum sem mun hafa afhent unglingspilti hlaupbangsa sem innihéldu kannabisefni og morfín. Tvær unglingsstúlkur voru fluttar meðvitundarlausar á sjúkrahús á föstudagskvöld eftir að hafa innbyrt bangsana.

Ólafur Helgi Kjartansson, lögreglustjórinn á Suðurnesjum, staðfestir í samtali við Vísi að lögreglan telji sig hafa fundið manninn en fyrst var greint frá á mbl.

Ólafur segist að öðru leyti ekki geta sagt meira um málið, til að mynda á hvaða aldri maðurinn er eða hvort hann sé í haldi lögreglu. Segir Ólafur að lögregla hafi vonandi frekari upplýsingar á morgun.

Lögreglan á Suðurnesjum greindi frá málinu í færslu á Facebook-síðu sinni í gær. Þar sagði að rannsókn lögreglu hefði leitt í ljós að stúlkurnar voru á sama stað fyrr um kvöldið og var þeim boðið að fá sér hlaup.

„Ómeðvitaðar hvað væri í hlaupinu þá fengu þær sér og enduðu þær báðar á sjúkrahúsi. Málin bárust til okkar og rannsókn leiddi í ljós að stúlkurnar höfðu fengið þetta hjá ungum aðila sem hafði sjálfur keypt þetta af sér eldri manni,“ sagði í færslu lögreglu í gær sem sjá má hér fyrir neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×