FÍT-verðlaunin 2020: Mörkun Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar 27. maí 2020 09:00 Verðlaunaverkefnin í flokknum Mörkun Alls voru 440 verk innsend til FÍT-verðlaunanna 2020. Innsend verk í keppnina hafa aldrei verið fleiri en úrslitin verða kynnt hér á Vísi næstu daga. Í flokknum Mörkun voru veitt gull- og silfurverðlaun í nokkrum undirflokkum. Þeir eru firmamerki, mörkun fyrirtækja, menningar- og viðburðarmörkun, geisladiskar og plötur og svo að lokum flokkurinn umbúðir. Lista yfir alla verðlaunahafa má finna hér neðar í fréttinni ásamt umsögnum um verðlaunaverkin. FÍT verðlaunahátíðin átti að fara fram í mars en vegna ástandsins í samfélaginu var ákveðið að tilkynna verðlaunahafana hér á Vísi og halda formlega afhendingu síðar. Næstu daga verða tilkynnt verðlaun í öllum 21 flokkunum og verður þessu skipt upp í fjórar tilkynningar. Á föstudaginn klukkan 09:00 verður svo tilkynnt hvaða gullverðlaunahafi hlýtur hin eftirsóttu aðalverðlaun FÍT. Verðlaunað verður það verk sem þykir eftirminnilegt og áhrifamikið í sínum flokki og góður fulltrúi fyrir sköpunargáfu Íslendinga í samkeppnum á alþjóðavísu. Eftirtalin verk hljóta verðlaun í flokknum Mörkun: Firmamerki Gull-Yay Gullverðlaun YAY — YAY gjafaapp Einfalt merki sem nær að innihalda allt heiti sitt, en virkar um leið sem stök teikning. Gleðin í nafninu, sem bókstaflega springur út í hreyfðum útgáfum merkisins, leynir sér ekki. Hönnun: Erla & Jónas, Metall, Jónfrí. Gull-Tré Lífsins Gullverðlaun Tré lífsins Fallegt og viðeigandi merki fyrir viðkvæma þjónustu. Það er ró yfir fínlegum línunum, sem um leið ná að vera jafn nútímalegar og lausnir fyrirtækisins. Hönnun: Einar Guðmundsson, Studio WDLND. Silfur-Hoos Silfurverðlaun Hoos Fjölbreytnin í merkinu passar vel við fjölbreytnina sem Hoos býður upp á, með stækkanlegum og breytanlegum einingum sínum. Hönnun: Albert Muñoz, Sigurður Oddsson, Ulysses. Silfur-Datera Silfurverðlaun Datera Einfalt, sterkt og um leið klassískt merki. Stendur vel eitt og sér og ekki síður með vel útfærðri leturgerð. Hönnun: Dóri Andrésson, Brandenburg. Mörkun fyrirtækja Gull-Megavika Domino´s Gullverðlaun Megavika Domino’s Ótrúlega heilsteypt, fjörug og vel heppnuð mörkun sem passar vörunni mjög vel. Dæmi um mörkun þar sem er hugsað fyrir öllu, hvort sem það er prent, umbúðir, hreyfigrafík eða hljóð. Hönnun: Hrafn Gunnarsson, Gunnhildur Karlsdóttir, Jón Páll Halldórsson, Þorvaldur Sævar Gunnarsson, Eyrún Eyjólfsdóttir Brandenburg. Gull-Datera Gullverðlaun Datera Nútímaleg og fersk mörkun á tegund fyrirtækis sem hefði hæglega getað farið „öruggari“ leið. Inniheldur allt sem mörkunin þarf og örlítið meira til, sem setur punktinn yfir i-ið. Hönnun: Dóri Andrésson, Þorgeir K. Blöndal, Eyrún Eyjólfsdóttir, Guðmundur Pétursson, Heiðar Þór Jónsson, Brandenburg. Silfur-Cabo Verde Silfurverðlaun Cabo Verde Fjörug, litrík og frískleg mörkun, sem fær neytandann til að vilja ferðast með flugfélaginu. Léttleikinn gefur til kynna að það séu engin vandamál sem fylgja því að ferðast með Cabo Verde. Hönnun: Dóri Andrésson, Bertrand Kirschenhofer, Íris Marteinsdóttir, Friðrik Sigurðarson, Íslenska. Silfur-Yuzu Silfurverðlaun Yuzu Óvænt og hamingjusöm nálgun á veitingastað, sem fær mann til að staldra við. Einfaldar teikningar í bland við sterka liti gera mörkunina áhugaverða. Hönnun: Júlía Runólfsdóttir Menningar og viðburðamörkun Gull-BA Graduation show 2019 Gullverðlaun BA sýning LHI — Listaháskóli Íslands Eftirminnileg mörkun á sýningu sem þarf að halda utan um mjög ólík verkefni. Hreyfingar í mörkuninni gefa efninu auka dýpt og leturheimurinn sem var smíðaður er skemmtilegur. Hönnun: Ármann Agnarsson og Helgi Páll. Gull-Sequences ix Gullverðlaun Sequences ix — Sequences Real Time Art Festival Hógvær og látlaus mörkun fyrir sýningu sem hefur náð fótfestu undanfarin ár. Einfalt útlitið leyfir innihaldi sýningarinnar að tala sinni rödd á hverjum stað fyrir sig og um leið geta gestir myndað sér sínar eigin skoðanir. Hönnun: Hrefna Sigurðardóttir. Silfur-HonnunarMars Silfurverðlaun HönnunarMars Skemmtilegur orðaleikur og einfalt og eftirtektarvert útlit. Með einföldum og fáum útlitseiningum er hægt að smíða áberandi útlit á lifandi og sterka hátíð. Hönnun: Arnar Freyr Guðmundsson, Birna Geirfinnsdóttir, Studio Studio. Geisladiskar og plötur Gull-Fever Dream Gullverðlaun Fever Dream — Of Monsters and Men Falleg sería af plötum, sem ná bæði að vera sterk heild en um leið ótrúlega fjölbreyttar. Erfitt fyrir plötusafnarann að vilja ekki eiga allt settið. Hönnun: Davíð Arnar Baldursson, Jón Sæmundur, Ragnar Þórhallsson. Silfur-CELL7 Silfurverðlaun Cell7 — Ragna Kjartansdóttir Metnaðarfult umslag og teikning sem heldur sterkri tengingu allt í gegn, hvort sem er umslag, vasi eða platan sjálfa. Lífleg lausn sem gefur manni sterka hugmynd um tónlistina sem á henni er. Hönnun: Eysteinn Þórðarson, Aton.JL Umbúðir Gull-Vetrarlína Omnom Gullverðlaun Vetrarlína Omnom Fáguð, falleg og um leið fínleg pakkning, sem nær að vera spennandi með hverju lagi sem er opnað. Fallegar teikningar á súkkulaðistykkjunum skiptir öllum þrem upp í ólíkar pakkningar, sem eru um leið svo sterkt heild. Hönnun: Veronica Filippin, Sara Riel, Omnom. Silfur-Víking Craft Silfurverðlaun Viking Craft — CCEP Einföld lausn á flóknu vandamáli, að merkja lítið upplag í einu með ólíkum en um leið mjög áþekkum umbúðum. Hönnun: Viktor Weisshappel Vilhjálmsson, Albert Muñoz, Sigurður Oddsson, Eysteinn Þórðarson, Magnús Ingvar Ágústsson, Ulysses. Silfur-Marberg gin Silfurverðlaun Marberg gin — Thoran Distillery Skemmtilega hress og litrík leið við að hanna umbúðir sem eru tengdar sjónum, án þess að falla í gryfjur klisjunnar. Hönnun: Geir Ólafsson, Þorleifur Gunnar Gíslason, Birgir Már Sigurðsson, Aton.JL. FÍT, FÉLAG ÍSLENSKRA TEIKNARA var stofnað 23. nóvember 1953. FÍT keppnin er haldin árlega og þar er keppt um það besta í grafískri hönnun og myndskreytingum á Íslandi. Innsendingar í keppnina eru einnig opnar fyrir öðrum en FÍT meðlimum, enda er markmið keppninnar að endurspegla það besta í grafískri hönnun og myndlýsingum á Íslandi en ekki eingöngu það besta meðal félagsmanna. Öll úrslit FÍT verðlaunanna 2020 verða tilkynnt hér á Vísi næstu daga. Klukkan 12 í dag verður tilkynnt um verðlaunahafa í flokknum Prent. Á fimmtudag verður tilkynnt klukkan 09:00 um verðlaun í Skjáflokknum og klukkan 12 verður afhjúpað hverjir hljóta verðlaun í flokknum Auglýsingar. Aðalverðlaun FÍT verða svo tilkynnt á föstudaginn klukkan 09. Mest lesið Eins og gangandi beinagrindur með húðflygsur á sér Lífið Ráðherrann brunar af þingfundi til að horfa á leikinn Lífið Á móti vasapeningum og gæfi barni aldrei debetkort Lífið Steinunn Ólína í „friðarinnlögn“ með kæró Lífið Rasistar í sumarbústað Gagnrýni Sweeney í vanda fyrir að klæða Hollywood-skiltið í brjóstahaldara Lífið Í öndunarvél eftir blóðeitrun Lífið Bríet og Pálmi takast á fyrir dómstólum Lífið Ólst upp með lítið á milli handanna og fór ung að vinna í fiski Lífið Tíminn og vatnið frumsýnd á Sundance: „Viska afa í Teigó sigraði hjörtu þeirra“ Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Steinunn Ólína í „friðarinnlögn“ með kæró Kepptu í því að kveikja eld og klifra upp klifurturn Ráðherrann brunar af þingfundi til að horfa á leikinn Á móti vasapeningum og gæfi barni aldrei debetkort Sweeney í vanda fyrir að klæða Hollywood-skiltið í brjóstahaldara Í öndunarvél eftir blóðeitrun Eins og gangandi beinagrindur með húðflygsur á sér Draugur Lilju svífur yfir vötnum Þórdís og Júlí eiga von á öðru barni Gengst við geðhvarfasýki og biðst afsökunar: „Hlutirnir urðu verri því lengur sem ég hundsaði vandamálið“ Forritara stærðfræðileiks tekið eins og rokkstjörnu „Amma sagði alltaf að við værum líkir“ Kristrún, Sólrún Diego og Jón Jónsson sáu Galdrakarlinn í Oz Fréttatían: Pólitíkin, flug og söngleikir Sveppi þvoði hnausþykkt hár Eiðs Smára Féll eftir tuttugu ára edrúmennsku Ragga Theó fann ástina hjá Davíð Þór Ólst upp með lítið á milli handanna og fór ung að vinna í fiski Stjörnulífið: Fáklædd í fimbulkulda Bríet og Pálmi takast á fyrir dómstólum „Er eðlilegt að kynlíf taki af mér stjórn og að ég sé upptekinn af kynlífi flesta daga?“ Gisti þar sem Verdi andaðist fyrir hreina tilviljun Dagurinn þegar Bessastaðatjörn varð vettvangur harmleiks Gæti vaknað einn daginn og ætlað á þing Kannast ekki við að vera genginn til liðs við Samfylkinguna „Sílíkon er eitthvað sem mun fara með mér í gröfina“ Aron Can og Erna selja en elska eldhúsbúrið Brúðurin hljóp grátandi út áður en Victoria dansaði við Brooklyn Fyrrverandi bassaleikari Scorpions látinn Rifjar upp misgóðar minningar í sölutilkynningunni Sjá meira
FÍT, FÉLAG ÍSLENSKRA TEIKNARA var stofnað 23. nóvember 1953. FÍT keppnin er haldin árlega og þar er keppt um það besta í grafískri hönnun og myndskreytingum á Íslandi. Innsendingar í keppnina eru einnig opnar fyrir öðrum en FÍT meðlimum, enda er markmið keppninnar að endurspegla það besta í grafískri hönnun og myndlýsingum á Íslandi en ekki eingöngu það besta meðal félagsmanna. Öll úrslit FÍT verðlaunanna 2020 verða tilkynnt hér á Vísi næstu daga. Klukkan 12 í dag verður tilkynnt um verðlaunahafa í flokknum Prent. Á fimmtudag verður tilkynnt klukkan 09:00 um verðlaun í Skjáflokknum og klukkan 12 verður afhjúpað hverjir hljóta verðlaun í flokknum Auglýsingar. Aðalverðlaun FÍT verða svo tilkynnt á föstudaginn klukkan 09.
Mest lesið Eins og gangandi beinagrindur með húðflygsur á sér Lífið Ráðherrann brunar af þingfundi til að horfa á leikinn Lífið Á móti vasapeningum og gæfi barni aldrei debetkort Lífið Steinunn Ólína í „friðarinnlögn“ með kæró Lífið Rasistar í sumarbústað Gagnrýni Sweeney í vanda fyrir að klæða Hollywood-skiltið í brjóstahaldara Lífið Í öndunarvél eftir blóðeitrun Lífið Bríet og Pálmi takast á fyrir dómstólum Lífið Ólst upp með lítið á milli handanna og fór ung að vinna í fiski Lífið Tíminn og vatnið frumsýnd á Sundance: „Viska afa í Teigó sigraði hjörtu þeirra“ Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Steinunn Ólína í „friðarinnlögn“ með kæró Kepptu í því að kveikja eld og klifra upp klifurturn Ráðherrann brunar af þingfundi til að horfa á leikinn Á móti vasapeningum og gæfi barni aldrei debetkort Sweeney í vanda fyrir að klæða Hollywood-skiltið í brjóstahaldara Í öndunarvél eftir blóðeitrun Eins og gangandi beinagrindur með húðflygsur á sér Draugur Lilju svífur yfir vötnum Þórdís og Júlí eiga von á öðru barni Gengst við geðhvarfasýki og biðst afsökunar: „Hlutirnir urðu verri því lengur sem ég hundsaði vandamálið“ Forritara stærðfræðileiks tekið eins og rokkstjörnu „Amma sagði alltaf að við værum líkir“ Kristrún, Sólrún Diego og Jón Jónsson sáu Galdrakarlinn í Oz Fréttatían: Pólitíkin, flug og söngleikir Sveppi þvoði hnausþykkt hár Eiðs Smára Féll eftir tuttugu ára edrúmennsku Ragga Theó fann ástina hjá Davíð Þór Ólst upp með lítið á milli handanna og fór ung að vinna í fiski Stjörnulífið: Fáklædd í fimbulkulda Bríet og Pálmi takast á fyrir dómstólum „Er eðlilegt að kynlíf taki af mér stjórn og að ég sé upptekinn af kynlífi flesta daga?“ Gisti þar sem Verdi andaðist fyrir hreina tilviljun Dagurinn þegar Bessastaðatjörn varð vettvangur harmleiks Gæti vaknað einn daginn og ætlað á þing Kannast ekki við að vera genginn til liðs við Samfylkinguna „Sílíkon er eitthvað sem mun fara með mér í gröfina“ Aron Can og Erna selja en elska eldhúsbúrið Brúðurin hljóp grátandi út áður en Victoria dansaði við Brooklyn Fyrrverandi bassaleikari Scorpions látinn Rifjar upp misgóðar minningar í sölutilkynningunni Sjá meira
Gengst við geðhvarfasýki og biðst afsökunar: „Hlutirnir urðu verri því lengur sem ég hundsaði vandamálið“