Appolólakkrísbitinn er útilegunammið í ár Góa 28. maí 2020 10:29 Nýjasta nammið frá Góu er að gera allt vitlaust. Appolólakkrísbitinn er sumarsmellurinn í ár.
Glænýja sumarnammið frá Góu, Appolólakkrísbitinn er að gera allt vitlaust. Bitarnir rjúka úr hillum verslana og greinilegt að íslenskir nammigrísir kunna vel að meta þessa samsetningu. Eins og nafnið gefur til kynna er um að ræða appolólakkrís en í óvæntum félagsskap, bitinn er falinn innan í hraunbita og þarna virðist Góa hafa slegið í gegn. Helgi í Góu kann á sætutönn Íslendinga. „Já, já það er bara gaman að koma með svona sumarsmell. Við höfum gert það áður, hitt svona á rétta tóninn,“ segir Helgi í Góu. „Við erum auðvitað fræg fyrir hraunbitana en í þessum nýja bita er lakkrís með marsípani innan í hrauni. Einu sinni vorum við með Dúndur, lakkrísrör innan í hrauni. Hér er alltaf verið að prófa eitthvað og unga fólkið vill gera nýjar tilraunir. Þetta er allt gott, það verður gaman að sjá hvað Appolólakkrísbitinn lifir lengi. Við höfum varla undan að framleiða en það þýðir þá bara að þetta er alltaf glænýtt í búðunum,“ segir hann hress og þykir ekki ólíklegt að bitinn rati ofan í hvert einasta nestisbox sumarsins. „Við reynum að gera sumarið gott hjá öllum og þetta er mjög gott í útilegurnar.“ Algjörir lakkríslendingar Spurður út í hið einstaka samband sem Íslendingar virðast eiga við lakkrís fullyrðir Helgi að enginn annar lakkrís standist bragðsamanburð við þann íslenska. „Hann hefur alltaf verið voða vinsæll, lakkrísinn. Ég held að við hljótum að eiga met í lakkrísáti hér á Íslandi enda er íslenskur lakkrís góður. Lakkrís í Ameríku er til dæmis allt öðruvísi á bragðið en okkar. Þessi samsetning, að blanda súkkulaði og lakkrís saman er líka séríslenskt fyrirbæri.“ Er von á fleiri nýjungum frá sælgætisverksmiðjunni í sumar? „Þetta er nú orðið ágætt í bili og þó, það á aldrei að segja aldrei, við erum með mjög góð efni og höfum búið til ýmislegt. Svo dettur maður svona niður á réttu blönduna og rétta tóninn,“ segir Helgi.
Ferðalög Mest lesið „Þetta situr enn þá í mér í dag“ Lífið Tískan við þingsetningu: Þjóðlegur þriðjudagur Tíska og hönnun Ástin kviknaði á Kaffibarnum Lífið Heitustu trendin í haust Lífið Hildur Yeoman lofuð í hástert á Style Bubble Lífið Staðfesta þátttöku í Eurovision með fyrirvara um þátttöku Ísraela Lífið Ástrós Trausta, John Legend og Bæjarins Beztu í Kjós Lífið Misvel tekið í gjörning Sverris: „Lokkandi beita fyrir niðrandi ummæli“ eða ást á tungumálinu Menning Jóhann Berg og Hólmfríður selja glæsihöllina á Arnarnesi Lífið „Pabbi Rúríks“ lét sig ekki vanta Lífið Fleiri fréttir Þykkari augnhár og augabrúnir – vísindin á bak við UKLASH Opnunarhátíð í Ríteil Kids „við erum að drukkna í fötum“ Hætti að þurfa að ryksuga upp hárin eftir hverja sturtu Ný svefnlína sem hjálpar þér að sofna, sofa og vakna hress! Með stimpil upp á ekta spænska matarmenningu Með stimpil upp á ekta spænska matarmenningu Er hárið skemmt eða bara þurrt? Opna Preppbarinn í Keflavík og bjóða 50% afslátt Stjörnum prýdd dagskrá Bylgjunnar í Hljómskálagarðinum Stöðugt á ferð og flugi með sterkari skrokk Víkurverk hefur allt fyrir ferðalagið og meira til Hver dáleiðsla er spennandi og ófyrirsjáanlegt ferðalag Fann lausn við verkjunum sem breytti öllu Egill, Valgeir og Sigurður Bjóla saman á sviði í fyrsta sinn síðan 1976 Sjá meira
Misvel tekið í gjörning Sverris: „Lokkandi beita fyrir niðrandi ummæli“ eða ást á tungumálinu Menning
Misvel tekið í gjörning Sverris: „Lokkandi beita fyrir niðrandi ummæli“ eða ást á tungumálinu Menning