Markalaust við Mersey Arnar Geir Halldórsson skrifar 21. júní 2020 19:43 Gylfi í baráttunni í dag. vísir/Getty Everton og Liverpool mættust á Goodison Park í nágrannaslag í síðasta leik helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni í dag. Þetta var fyrsti leikur beggja liða eftir hléið í kjölfar kórónuveirufaraldursins og leikurinn var vægast sagt tíðindalítill. Íslenski landsliðsmaðurinn Gylfi Þór Sigurðsson hóf leik á varamannabekk Everton en kom inná á 60.mínútu og lék síðasta hálftímann. Ekkert mark var skorað í leiknum en Everton komst næst því að skora þegar rúmar tíu mínútur lifðu leiks en skot Tom Davies hafnaði í stönginni. Enski boltinn
Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Handbolti
Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Handbolti