Erlent

Skoðuðu í þrígang hvort Peter Madsen tengdist morðinu á Emilie Meng

Sylvía Hall skrifar
Emilie Meng hvarf árið 2016. Lík hennar fannst á aðfangadag, fimm mánuðum síðar.
Emilie Meng hvarf árið 2016. Lík hennar fannst á aðfangadag, fimm mánuðum síðar. Vísir/EPA

Í nýrri bók um hvarf og morðið á dönsku unglingsstúlkunni Emilie Meng kemur fram að lögregla kannaði þrisvar hvort danski uppfinningamaðurinn Peter Madsen tengdist morðinu. Madsen var árið 2018 dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir morðið á sænsku blaðakonunni Kim Wall.

Bókin kemur út þann 23. júní og segir frá máli Emilie Meng. Emilie var aðeins sautján ára þegar hún hvarf í Korsør þann 10. júlí árið 2016. Lík hennar fannst í stöðuvatni á aðfangadag sama ár þegar maður kom auga á það eftir að hundur hans byrjaði að haga sér undarlega. Málið hefur ekki enn verið upplýst.

Blaðamennirnir Bo Norström Weile og Jesper Vestergaard Larsen fara yfir málið í bókinni og fjalla um þá sem grunaðir voru um morðið. Nokkrir heimildarmenn þeirra staðfesta að möguleg tengsl Madsen við málið hafi verið skoðuð eftir að hann var handtekinn.

Hvarf Emilie Meng vakti mikinn óhug á sínum tíma, en hún kvaddi tvær vinkonur sínar fyrir utan lestarstöðina í Korsør vestast á Sjálandi snemma morguns þann 10. júlí 2016. Þær höfðu verið að skemmta sér í Slagelse, um tíu kílómetrum austar.

Þegar Emilie kvaddi vinkonur sínar voru þær á leið í leigubíl heim en hún sjálf hafði ákveðið að ganga um fjögurra kílómetra leið til foreldra sinna með tónlist í eyrunum. Ekkert spurðist svo til hennar fyrr en líkið fannst um fimm mánuðum seinna.

Lögreglumenn hérlendis sem rannsökuðu mál Birnu Brjánsdóttur könnuðu hvort tengsl væru milli málanna og fylgdist lögreglan í Danmörku sömuleiðis með rannsókninni hér á landi. 

Polar Nanoq hefði hins vegar ekki verið í höfn í Danmörku á þeim tíma sem stúlkan hvarf og því benti ekkert til þess að málin væru tengd. Togarinn lagði úr höfn í Fredrikshavn á Jótlandi laugardaginn 7. janúar áður en siglt var til Hafnarfjarðar og sá lögregla því ástæða til að kanna hvort að málin tengdust.


Tengdar fréttir

Morðingi Kim Wall giftist blaðakonu

Peter Madsen, danskur uppfinningamaður sem árið 2018 var dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir að hafa orðið sænsku blaðakonunni Kim Wall að bana, er genginn í hjónaband.

Kafbátur Madsen tekinn í sundur og eyðilagður

Kafbátur danska morðingjans Peters Madsen, UC3 Nautilus, hefur verið tekinn í sundur og honum fargað. Þetta staðfesti lögreglan í Kaupmannahöfn við danska fjölmiðla í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×