Innlent

Þau tala fyrir flokkana í eld­hús­dags­um­ræðum í kvöld

Atli Ísleifsson skrifar
Eldhúsdagsumræðurnar hefjast klukkan 19:30.
Eldhúsdagsumræðurnar hefjast klukkan 19:30. Vísir/Vilhelm

Svokallaðar eldhúsdagsumræður fara fram á Alþingi í kvöld. Umræðurnar hefjast klukkan 19:30 og verður hægt að fylgjast með þeim hér á Vísi.

Umræðurnar skiptast í þrjár umferðir og hefur hver þingflokkur átta mínútur í fyrstu umferð, fimm mínútur í annarri og fimm mínútur í síðustu umferð.

Í tilkynningu frá skrifstofu Alþingis segir að röð flokkanna verði á þennan veg í öllum umferðum: Miðflokkurinn, Sjálfstæðisflokkur, Samfylkingin, Vinstrihreyfingin – grænt framboð, Píratar, Framsóknarflokkur, Viðreisn og Flokkur fólksins. Andrés Ingi Jónsson, þingmaður utan flokka, fær fimm mínútur í lok fyrstu umferðar.

„Ræðumenn flokkanna verða eftirtaldir:

  • Fyrir Miðflokkinn tala Gunnar Bragi Sveinsson, 6. þm. Suðvesturkjördæmis, í fyrstu umferð, Sigurður Páll Jónsson, 8. þm. Norðvesturkjördæmis, í annarri og í þeirri þriðju Karl Gauti Hjaltason, 8. þm. Suðurkjördæmis.
  • Ræðumenn Sjálfstæðisflokksins eru Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, ferðamála- iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, í fyrstu umferð, í annarri Njáll Trausti Friðbertsson, 6. þm. Norðausturkjördæmis, og í þriðju umferð Vilhjálmur Árnason, 9. þm. Suðurkjördæmis.
  • Fyrir Samfylkinguna tala í fyrstu umferð Oddný G. Harðardóttir, 6. þm. Suðurkjördæmis, í annarri Ágúst Ólafur Ágústsson, 3. þm. Reykjavíkurkjördæmis suður, og í þeirri þriðju Albertína Friðbjörg Elíasdóttir, 10. þm. Norðausturkjördæmis.
  • Fyrir Vinstrihreyfinguna – grænt framboð tala Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, 7. þm. Norðausturkjördæmis, í fyrstu umferð, Ari Trausti Guðmundsson, 5. þm. Suðurkjördæmis, og í annarri og í þriðju umferð Rósa Björk Brynjólfsdóttir, 3. þm. Suðvesturkjördæmis.
  • Ræðumenn Pírata eru í fyrstu umferð Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, 4. þm. Reykjavíkurkjördæmis suður, í annarri Halldóra Mogensen, 11. þm. Reykjavíkurkjördæmis norður, og Helgi Hrafn Gunnarsson, 3. þm. Reykjavíkurkjördæmis norður, í þriðju umferð.
  • Ræðumenn Framsóknarflokksins eru Líneik Anna Sævarsdóttir, 9. þm. Norðausturkjördæmis, í fyrstu umferð, Willum Þór Þórsson, 9. þm. Suðvesturkjördæmis, í annarri og í þriðju umferð Silja Dögg Gunnarsdóttir, 7. þm. Suðurkjördæmis.
  • Fyrir Viðreisn tala í fyrstu umferð Hanna Katrín Friðriksson, 7. þm. Reykjavíkurkjördæmis suður, í annarri Jón Steindór Valdimarsson, 13. þm. Suðvesturkjördæmis, og í þriðju umferð Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, 7. þm. Reykjavíkurkjördæmis norður.
  • Fyrir Flokk fólksins tala Inga Sæland, 8. þm. Reykjavíkurkjördæmis suður, í fyrstu og þriðju umferð en Guðmundur Ingi Kristinsson, 12. þm. Suðvesturkjördæmis, í annarri umferð.
  • Þingmaður utan flokka, Andrés Ingi Jónsson, 9. þm. Reykjavíkurkjördæmis norður, talar í lok fyrstu umferðar,“ segir í tilkynningunni.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×