Hanna tekur 26. tímabilið í meistaraflokki Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 29. júní 2020 17:00 Hanna í mjög svo kunnuglegri stöðu. vísir/daníel Handboltakonurnar Hanna G. Stefánsdóttir og Elísabet Gunnarsdóttir hafa framlengt samninga sína við Stjörnuna. Þær eru í hópi reynslumestu leikmanna landsins. Næsta tímabil verður t.a.m. það 26. hjá Hönnu í meistaraflokki. Hanna, sem varð 41 árs fyrr á árinu, var fyrst í leikmannahópi Hauka tímabilið 1994-95. Hún var í hóp í einum deildarleik það tímabil og sjö tímabilið 1995-96. Fyrstu mörkin í meistaraflokki skoraði hún tímabilið 1996-97. Hanna hefur leikið með Stjörnunni frá 2010. Hún lék með Haukum 1995-2003 og svo aftur 2004-2010. Í millitíðinni lék hún með Team Tvis Holstebro í Danmörku. Á síðasta tímabili skoraði Hanna 42 mörk í tólf leikjum í Olís-deildinni. Elísabet skoraði tíu mörk í fimm deildarleikjum. Stjarnan var í 3. sæti Olís-deildarinnar þegar keppni var hætt vegna kórónuveirufaraldursins. Hanna lék 142 landsleiki á sínum tíma og skoraði 458 mörk. Elísabet lék 63 landsleiki og skorað 73 mörk. Rakel Dögg Bragadóttir stýrir Stjörnunni á næsta tímabili. Liðið hefur bætt við sig nokkrum leikmönnum, þ.á.m. landsliðskonunum Helenu Rut Örvarsdóttur og Evu Björk Davíðsdóttur.
Handboltakonurnar Hanna G. Stefánsdóttir og Elísabet Gunnarsdóttir hafa framlengt samninga sína við Stjörnuna. Þær eru í hópi reynslumestu leikmanna landsins. Næsta tímabil verður t.a.m. það 26. hjá Hönnu í meistaraflokki. Hanna, sem varð 41 árs fyrr á árinu, var fyrst í leikmannahópi Hauka tímabilið 1994-95. Hún var í hóp í einum deildarleik það tímabil og sjö tímabilið 1995-96. Fyrstu mörkin í meistaraflokki skoraði hún tímabilið 1996-97. Hanna hefur leikið með Stjörnunni frá 2010. Hún lék með Haukum 1995-2003 og svo aftur 2004-2010. Í millitíðinni lék hún með Team Tvis Holstebro í Danmörku. Á síðasta tímabili skoraði Hanna 42 mörk í tólf leikjum í Olís-deildinni. Elísabet skoraði tíu mörk í fimm deildarleikjum. Stjarnan var í 3. sæti Olís-deildarinnar þegar keppni var hætt vegna kórónuveirufaraldursins. Hanna lék 142 landsleiki á sínum tíma og skoraði 458 mörk. Elísabet lék 63 landsleiki og skorað 73 mörk. Rakel Dögg Bragadóttir stýrir Stjörnunni á næsta tímabili. Liðið hefur bætt við sig nokkrum leikmönnum, þ.á.m. landsliðskonunum Helenu Rut Örvarsdóttur og Evu Björk Davíðsdóttur. Komnar: Helena Rut Örvarsdóttir frá SønderjyskE (Danmörku) Eva Björk Davíðsdóttir frá Skuru (Svíþjóð) Katla María Magnúsdóttir frá Selfossi Heiðrún Dís Magnúsdóttir frá Fram Anna Karen Hansdóttir frá Horsens (Danmörku) Liisa Bergdís Arnarsdóttir frá Kongsvinger (Noregi) Farnar: Ólöf Ásta Arnþórsdóttir til HK Þórey Anna Ásgeirsdóttir til Vals
Komnar: Helena Rut Örvarsdóttir frá SønderjyskE (Danmörku) Eva Björk Davíðsdóttir frá Skuru (Svíþjóð) Katla María Magnúsdóttir frá Selfossi Heiðrún Dís Magnúsdóttir frá Fram Anna Karen Hansdóttir frá Horsens (Danmörku) Liisa Bergdís Arnarsdóttir frá Kongsvinger (Noregi) Farnar: Ólöf Ásta Arnþórsdóttir til HK Þórey Anna Ásgeirsdóttir til Vals
Olís-deild kvenna Stjarnan Mest lesið Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport „Hann kvartar yfir öllu“ Enski boltinn Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Körfubolti Slys í lýsendaboxinu: „Höndin er brotin“ Sport Fyrrum leikmaður Stjörnunnar tekst á við atvinnuleysi Fótbolti Tennispar skilur vegna áhrifa stríðsins Sport Sextán ára stjarna Vals heillar Körfubolti Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Enski boltinn Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Körfubolti Fleiri fréttir Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Sjá meira