Körfubolti

Fundu ekki Ís­land og töpuðu síðan

Stefán Árni Pálsson skrifar
Hefðu betur átt að sinna heimavinnunni meira fyrir leikinn.
Hefðu betur átt að sinna heimavinnunni meira fyrir leikinn.

Tindastólsmenn hafa farið mikinn í ENBL-deildinni á þessu tímabili og unnið fyrstu þrjá leikina.

Þann 30. september vann liðið þægilegan sigur á Bristol Flyers á útivelli. Leikurinn fór 85-68.

Daginn áður birti Bristol Flyers myndband á Instagram-síðu sinni þar sem leikmenn liðsins áttu að finna Ísland á landakorti og gekk það sannarlega upp og niður.

Fæstir náðu að klára verkefnið eins og sjá má hér að neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×