Leeds færist nær og nær sæti í ensku úrvalsdeildinni Ísak Hallmundarson skrifar 4. júlí 2020 16:35 Kalvin Phillips skoraði í dag. vísir/getty Leeds United vann mikilvægan sigur gegn Blackburn í ensku 1. deildinni í baráttunni um sæti í ensku úrvalsdeildinni. Lokatölur 3-1 útisigur Leeds. Patrick Bamford kom Leeds yfir strax á 7. mínútu og Kalvin Phillips tvöfaldaði forskotið á 40. mínútu. Adam Armstrong minnkaði muninn fyrir Blackburn á 48. mínútu en Mateusz Klich var fljótur að auka forystu Leeds og koma þeim í 3-1 á 53. mínútu. Fleiri urðu mörkin ekki. Leeds er á toppnum í deildinni með 78 stig og sex stiga forskot á Brentford sem eru í þriðja sæti þegar aðeins fimm leikir eru eftir. Leedsarar á góðri leið með að snúa aftur í deild þeirra bestu á næsta tímabili eftir 16 ára fjarveru. Blackburn eru um miðja deild í 11. sæti. Enski boltinn
Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Handbolti
Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Handbolti