Spáð allhvassri suðvestanátt norðantil og austan Öræfa Atli Ísleifsson skrifar 14. ágúst 2020 06:20 Bjart en viða mikill vindur, segir í kortum Veðurstofunnar. Veðurstofan
Veðurstofan spáir suðvestanátt þar sem búast má við henni allhvassri víða norðantil á landinu sem og á Suðausturlandi, austan Öræfa. Þar séu líkur á hviðum yfir 25 metra á sekúndu og eru allir þeir sem eru á ferðinni með tjaldvagna eða fellihýsi hvattir til að hafa varann á. Í hugleiðingum veðurfræðings segir að suðvestantil og á Austurlandi sé öllu hægari vindur og meinlaus. „Víðast hvar skín sól í heiði, en þykknar upp um sunnanvert landið seint í dag. Hlýindin sem hafa verið eystra halda áfram, en í dag verður hitinn líklega mestur á Héraði, um 22 til 23 stig. Vestantil á landinu fer hann þó væntanlega ekki langt yfir 15 stig. Næstu daga er útlit fyrir að vinda lægi nokkuð og vætutíðinni sem verið hefur undanfarið sloti. Þeim austlendingum sem gott þykir að vera í hita skyldu njóta hans til hins ítrasta á meðan færi gefst, vegna þess að á þriðjudaginn er útlit fyrir að norðaustanátt komi í stað þeirrar suðvestlægu og við það kólnar tilfinnanlega, sérstaklega um austanvert landið,“ segir í færslu veðurfræðings. Veðurhorfur á landinu næstu daga Á laugardag: Suðlæg átt 5-10, rigning eða súld með köflum og hiti 10 til 16 stig um vestarvert landið, en hæg breytileg átt og léttskýjað eystra, og hiti 16 til 23 stig þar. Á sunnudag: Fremur hæg breytileg átt og yfirleitt bjart, en suðaustan 5-10 m/s og skýjað með köflum við suðvesturströndina. Hiti 10 til 20 stig, hlýjast á Norðurlandi eystra. Á mánudag: Hæg breytileg átt, skýjað með köflum og þurrt að kalla, en bjartviðri norðaustantil. Hiti víða 12 til 19 stig, hlýjast á Austur- og Vesturlandi. Á þriðjudag og miðvikudag: Þykknar upp í norðaustlægri átt með lítilsháttar vætu. Kólnar í veðri. Á fimmtudag: Útlit fyrir norðaustanátt. Skýjað austantil, en bjart að vestanverðu og svalt í veðri, einkum norðan heiða.
Veður Mest lesið Trump hrósaði forsetanum fyrir færni í eigin móðurmáli Erlent Tveir menn fjárkúguðu ungan dreng Innlent Mátti ekki lána sér pening úr eigin fyrirtæki Innlent Metnaðarfullar malbikunarauglýsingar hluti af væb-kúltúrnum Innlent Fundu jöklafýlu í Þórsmörk vegna hlaupsins Innlent Hlýnar um helgina Veður Pilturinn er fundinn Innlent Vill hefna vinar síns Bolsonaro með 50 prósenta tollum á Brasilíu Erlent Bindur vonir við „einn inn, einn út“ áætlun í innflytjendamálum Erlent Sjúklingar óttist dómhörku vegna þyngdarstjórnunarlyfja Innlent Fleiri fréttir Hlýnar um helgina Skýjað með skúrum í höfuðborginni Rigning í Reykjavík en hlýtt og gott fyrir austan „Við sáum að veðrið var best fyrir austan þannig við drifum okkur austur“ Hiti nær tuttugu stigum víða á morgun Fínasta veður um land allt Hægviðri, hafgola og hiti að átján stigum Skúrir á víð og dreif Rigning með köflum sunnan- og vestanlands Skúrir víða um land og lægð nálgast Allkröpp lægð á leiðinni til landsins Skýjað og skúrir en ekki of kalt Allt að sautján stiga hiti í dag Búast má við töluverðum dembum Rigning víða í dag Skýjað og væta í flestum landshlutum Áfram hlýjast á Vesturlandi Hlýjast á Vesturlandi Gular viðvaranir í kortunum Hiti gæti náð sautján stigum suðaustantil Bætir í úrkomu í kvöld Rigning eða súld um landið allt Lægðardrag yfir landinu Hiti að sextán stigum Allt að átján stiga hiti fyrir vestan Allt að tuttugu stiga hiti Að átján stigum suðvestanlands Fjögurra daga bongóblíða í vændum Væta víðast hvar og hiti að sautján stigum Rigning og hvassviðri með suðurströndinni Sjá meira