Tíræður 800 barna faðir sest í helgan stein Þórgnýr Einar Albertsson skrifar 14. janúar 2020 19:30
Skjaldbakan Diego snýr heim til Espanola-eyju í Kyrrahafi í mars eftir að hafa leikið lykilhlutverk í að bjarga tegund sinni frá útrýmingu. Hinn rúmlega hundrað ára gamli Diego er sannkallaður glaumgosi. Enda er hann fjallmyndarlegur. Um áttatíu kíló og einn og hálfur metri að lengd þegar hann teygir úr sér. Diego fæddist á eynni Espanola en var fluttur í dýragarðinn í borginni San Diego í Kaliforníu, sem er ekki nefnd eftir skjaldbökunni, þegar hann var um tvítugt. Þar dvaldist hann fram til ársins 1976 þegar hann fékk það hlutverk að bjarga tegund sinni, Galapagos-risaskjaldbökunni, frá útrýmingu. Glaumgosaskjaldbakan svokallaða var þá flutt á Pinzon-eyju, sem er hluti Galapagos-eyjaklasans líkt og Espanola. Þar vann hann með tveimur öðrum karlskjaldbökum og tólf kvenskjaldbökum, öllum sem eftir voru í heiminum, að því að byggja stofninn upp á ný. Undanfarna áratugi hefur Diego verið duglegri en flestir við að æxla sig. Stofninn hefur stækkað úr fimmtán dýrum í um tvö þúsund og á Diego átta hundruð börn, geri aðrir betur. En nú er komið að því að þessi bjargvættur setjist í helgan stein. Hann er því á leið heim aftur til Espanolu þar sem hann mun búa með eðlum, sæljónum og fuglum.
Dýr Ekvador Galapagoseyjar Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Innlent „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Innlent Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Innlent „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Innlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Erlent Fleiri fréttir Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Sjá meira