Léttskýjað syðra en bætir í snjókomuna fyrir norðan Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 30. janúar 2020 07:15 Það mun sjást til sólar á höfuðborgarsvæðinu í dag. vísir/vilhelm
Það verður norðlæg átt í dag, yfirleitt fimm til þrettán metrar á sekúndu. Snjókoma með köflum eða dálítil él um landið norðanvert en léttskýjað að mestu syðra. Síðdegis gengur í norðan átta til fimmtán metra á sekúndu og bætir í snjókomuna norðanlands. Þetta kemur fram í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands. Þar segir jafnframt að frost verði víða á bilinu eitt til átta stig en sums staðar mun hitinn skríða upp fyrir frostmark við ströndina. Þá verður svipað veður á morgun en heldur mun draga úr ofankomunni fyrir norðan. Á laugardaginn er svo útlit fyrir bjart og stillt veður víða um land og mun herða talsvert á frosti, einkum norðaustanlands.Veðurhorfur á landinu:Norðlæg átt yfirleitt 5-13 m/s. Snjókoma með köflum eða dálítil él um landið norðanvert, en léttskýjað að mestu syðra. Norðan 8-15 og bætir í ofankomu norðanlands síðdegis.Norðan og norðaustan 5-13 á morgun, en norðvestan 13-18 undir Vatnajökli síðdegis. Snjókoma með köflum norðanlands, en áfram bjart sunnantil. Frost 0 til 9 stig, kaldast inn til landsins.Á föstudag:Norðlæg átt 5-13 m/s, en 10-15 norðanlands fram eftir degi. Bjartviðri sunnantil á landinu, en annars él, einkum um landið norðaustanvert. Frost 1 til 10 stig, kaldast inn til landsins.Á laugardag:Hæg breytileg átt, skýjað með köflum og yfirleitt þurrt, en norðvestan 8-13 og él norðaustantil fyrri part dags. Herðir á frosti.Á sunnudag:Hæg suðlæg átt. Skýjað með köflum eða bjartviðri, en stöku él um landið sunnan- og vestanvert. Frost 3 til 13 stig, kaldast inn til landsins.Á mánudag:Austlæg átt með snjókomu eða éljum sunnantil á landinu. Áfram kalt í veðri.
Veður Mest lesið Telja líklegt að þeir hafi drepið írönsku skólastúlkurnar Erlent Eyjólfur færir klukkuna aftur Innlent Alvarlegt umferðarslys við Munaðarnes Innlent Varað við þrumuveðri með tíðum eldingum Veður Vegfarandi á sjúkrahús og Kringlumýrarbraut lokað eftir þriggja bíla árekstur Innlent Bein útsending: Kynna tillögu um þjóðaratkvæðagreiðslu Innlent Þjóðaratkvæðagreiðslan fer fram 29. ágúst Innlent Bandaríkjamenn heimila Indverjum að kaupa olíu frá Rússlandi Erlent Síminn búinn að glamra í fjóra áratugi Innlent Enn frekari dráttur á máli Margrétar Innlent Fleiri fréttir Truflanir víða á höfuðborgarsvæðinu vegna eldingaveðurs Hvalfjarðargöng lokuð Vatnselgur undir brúnni í Ártúnsbrekku Ríkisstjórnin feli aðgerðaleysi á bak við atkvæðagreiðsluna Enn frekari dráttur á máli Margrétar „Verið að vaða áfram með æðibunugangi“ Rafmagnslaust vegna eldingar Jakob Bjarnar, Kjartan og Sunna tilnefnd til blaðamannaverðlauna Bráðabirgðaráðstafnir í Reynisfjöru: Nýr útsýnispallur rís í vor Mál Margrétar flutt á ný vegna dráttar Bjarki lætur staðar numið í Dalabyggð Ísland sé í sterkari stöðu en áður fyrir aðildarviðræður Alvarlegt umferðarslys við Munaðarnes Bein útsending: Staða loftlagsrannsókna á Íslandi Þjóðaratkvæðagreiðslan fer fram 29. ágúst Kynna þjóðaratkvæði um framhald viðræðna Bein útsending: Kynna tillögu um þjóðaratkvæðagreiðslu Methiti í hafinu við Ísland vísbending um stærri breytingar Kynna tillöguna um þjóðaratkvæðagreiðsluna klukkan 11:30 „Brýn nauðsyn“ geti kallað á rof þagnarskyldu heilbrigðisstarfsfólks Bein útsending: Staða mæðra á vinnumarkaði Síminn búinn að glamra í fjóra áratugi Kýldi í rúðu leigubifreiðar og kastaði í hana flösku Algengasta tegundin sem skráð hefur verið á Íslandi Vegfarandi á sjúkrahús og Kringlumýrarbraut lokað eftir þriggja bíla árekstur Eyjólfur færir klukkuna aftur Vilja lokka höfuðborgarbúa norður og lofa nóg af bílastæðum „Margir staðir og margir sakborningar“ Rannsakar geimveður fyrir Bandaríkjaher „Er ekki alltaf gerlegt við þessar kringumstæður“ Sjá meira