Lilja stýrir SagaNatura Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 13. febrúar 2020 10:53 Lilja Kjalarsdóttir var við doktorsnám og störf í Texas og Norður-Karólínu.
Lilja Kjalarsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri líftæknifyrirtækisins SagaNatura. Hún tekur við starfinu af Sjöfn Sigurgísladóttur sem er einn af stofnendum félagsins að því er segir í tilkynningu frá SagaNatura. Sjöfn tekur sæti í stjórn félagsins og mun auk þess leiða verkefni sem varða framþróun félagsins á Íslandi og erlendis í samstarfi við stjórn og framkvæmdastjóra. Lilja lauk doktorsgráðu líflæknisvísindum (e. Biomedicine) frá UT Southwestern í Dallas árið 2011 og BSc gráðu í lífefnafræði frá Háskóla Íslands árið 2005. Að loknu doktorsnámi starfaði hún í þrjú ár við rannsóknir við Duke University. Eftir komuna til Íslands árið 2014 leiddi hún rannsóknir og þróun hjá líftæknifyrirtækinu Genís. Þar kom hún einnig að uppskölun framleiðslu og markaðssetningu. Lilja tók við stöðu aðstoðarframkvæmdastjóra SagaNatura í byrjun árs 2018 og hefur unnið þétt með Sjöfn að uppbyggingu félagsins á síðastliðnum tveim árum. Lilja hefur einnig sinnt rannsóknum hjá Landspítalanum og kennslu við Háskólann í Reykjavík. Sjöfn Sigurgísladóttir fráfarandi framkvæmdastóri, segir að SagaNatura hafi verið í örum vexti að undanförnu og hafi náð miklum árangri í sölu og uppskölun framleiðslunnar. „Það er mikill styrkleiki fyrir SagaNatura að fá kraftmikinn og reyndan stjórnanda og leiðtoga til að stýra rekstrinum áfram veginn,“ segir Sjöfn í tilkynningunni. Lilja er gift Svavari Sigursteinssyni einkaþjálfara og ljósmyndara og eiga þau tvö börn.
Tækni Vistaskipti Mest lesið Íslandsbanki fækkar starfsmönnum um fimmtíu Viðskipti innlent Fullt af fólki að vinna við eitthvað sem skiptir ekki máli Atvinnulíf Hagnaður jókst um 21 prósent á fyrsta ársfjórðungi Viðskipti innlent Afkomuöryggi allan hringinn með FLM Samstarf Nú er tíminn fyrir þak og klæðningar: „Við horfum á veðrið, ekki dagatalið“ Samstarf Sektað vegna auglýsinga fyrir „nikótínpúðajóladagatal“ Viðskipti innlent Innkalla nautahakk vegna gruns um salmonellu Viðskipti innlent Lýsa magnesíumverksmiðju sem „andstæðu loftslagsverkfræði“ Viðskipti innlent Rekstur borgarinnar neikvæður um 5,3 milljarða í fyrra Viðskipti innlent „Flestir sem eru á þessum lista eru dánir“ Neytendur Fleiri fréttir Íslandsbanki fækkar starfsmönnum um fimmtíu Hagnaður jókst um 21 prósent á fyrsta ársfjórðungi Rekstur borgarinnar neikvæður um 5,3 milljarða í fyrra Sektað vegna auglýsinga fyrir „nikótínpúðajóladagatal“ Lýsa magnesíumverksmiðju sem „andstæðu loftslagsverkfræði“ Innkalla nautahakk vegna gruns um salmonellu Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Sjá meira