Innlent

Skólahald raskast hjá 630 nemendum í fjórum skólum

Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar
Álftamýrarskóli þar sem skólastarf frestast vegna kórónuveirusmits.
Álftamýrarskóli þar sem skólastarf frestast vegna kórónuveirusmits. Vísir

Í gær var sagt frá því að starfsmaður í barnaskólanum í Reykjavík hefði reynst smitaður af Covid19 og þurfa allir kennarar þar að sæta sóttkví. Þar verður því röskun á skólastarfi næstu vikur. Um 130 nemendur eru í skólanum

Smitaðist á Hótel Rangá

Þá hefur skólasetningu sem átti að fara fram á morgun verið frestað til 2. september í Hvassaleitisskóla  og til 7 september í Álftamýraskóla eftir að starfmaður skólanna reyndist smitaður. Um 400 nemendur eru í skólunum.

Samkvæmt heimildum fréttastofu  smitaðist viðkomand starfsmaðuri í hópsýkingunni á Hótel Rangá í síðustu viku þar sem einn starfsmaður og tíu gestir smituðust af kórónuveirunni. 

Helgi Grímsson er sviðsstjóri skóla-og frístundasviðs Reykjavíkurborgar.  

„Það var verið að kynna starfsmanninn sem er nýr fyrir starfsfólki í Hvassaleitisskóla og Álftamýrarskóla en hann er nýr og starfar fyrir báða skólanna og svo óheppilega vildi til að hann reyndist smitaður. Þá var gripið til þess ráðs að setja alla starfsmenn í sóttkví til að koma í veg fyrir fleiri möguleg smit í þessu samfélagi,“ segir Helgi.

Hann segir segir skiljanlegt að röskunin reyni á foreldra og börn. 

„Við munum vera í sambandi við fjölskyldur barnanna og byggja upp eitthvað form af heimavinnu en þar sem ekki er búið að úthluta námsgögnum verður það með óhefðbundu sniði. Þá áttum við fund með starfsfólki frístundamiðstöðva í dag og börn í fyrsta bekk og börn með sérþarfir munu geta sótt þangað. Við vonumst einnig til að geta boðið upp á leikjanámskeið meðan á lokun stendur en það kemur í ljóst á morgun,“ segir Helgi.

Helgi Grímsson sviðsstjóri skóla-og frístundasviðs ReykjavíkurborgarVísir

Hann segir ljóst að svona tilfelli komi upp af og til á næstu mánuðum.

„Þetta er hluti af því lífi sem er bæði hér og út um allan heim og það má alveg búast við að svona aðstæður skapist í samfélaginu. Við þekkjum öll að vinnustaðir hafa þurft að loka vegna smits og þetta er bara eitt af því sem við þurfum að læra að lifa með,“ segir Helgi. 

Þá greindist starfsmaður á leikskólanum Huldubergi í Mosfellsbæ með með kórónuveirusmit. Samkvæmt upplýsingum frá Mosfellsbæ er verið að vinna málið í samvinnu við rakningarteymi. Þar sem nú sé verið að vinna samkvæmt hættustigi almannavarna hafi skólinn ekki verið hólfaður niður eins og í fyrri bylgju faraldursins þegar neyðarstig almannavarna gilti. Allir starfsmenn og um 100 nemendur skólans hafi því verið settir í úrvinnslusóttkví í tvær vikur. 

Rögnvaldur Ólafsson yfirlögregluþjónn Almannavarna sagði í samtali við fréttastofu í dag að neyðarstig almannavarna sé ekki til umræðu eins og sakir standa. Staðan verði tekin á morgun.


Tengdar fréttir

Allir kennarar Barnaskólans í Reykjavík í sóttkví

Allir starfsmenn Barnaskólans í Reykjavík hafa verið sendir í sóttkví eftir að kennari greindist smitaður. Skólasetning fór fram í gær en þar sem viðkomandi aðili var ekki þar hafa engir nemendur eða foreldrar þurft í sóttkví.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×