Lægð nálgast úr suðvestri Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 29. ágúst 2020 07:37 Það má búast við roki og rigningu vestan til á morgun, þó vonandi ekki í ætt við þessa mynd. Vísir/vilhelm
Í dag er spáð fremur hægri suðvestlægri átt með lítilsháttar vætu hér og þar, en þurru og björtu veðri á Suðausturlandi, að því er segir í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands. Í kvöld snýst hins vegar í suðlægari átt með rigninu um vestanvert landið. Á morgun nálgast lægð úr suðvestri og við það bætir í suðaustlæga átt og rigningu vestantil eftir því sem líður á daginn. Búast má við allt að 18 m/s við suðvesturströndina og á Faxaflóa annað kvöld. Um austanvert landið er útlit fyrir bjartara veður í hægari suðlægri átt. Veðurhorfur á landinu Fremur hæg suðvestlæg eða breytileg átt. Skýjað með köflum og lítilsháttar væta af og til, en þurrt að kalla á Suðausturlandi. Þokuloft við austurströndina. Snýst í sunnan 3-8 m/s með rigningu vestanlands í kvöld en léttir heldur til eystra. Hiti 8 til 15 stig, hlýjast suðaustantil. Veðurhorfur á landinu næstu daga Á sunnudag: Suðaustan 8-15 m/s og rigning, einkum sunnan- og vestantil, með hita 9 til 13 stig. Hægari suðlæg átt norðaustanlands, úrkomulítið og hiti 12 til 18 stig að deginum. Á mánudag: Suðaustan 3-8 m/s, en hvassari við austurströndina. Rigning í flestum landshlutum, einkum á Suðausturlandi. Hiti 10 til 16 stig. Á þriðjudag: Norðlæg átt 3-8 m/s norðvestantil, annars hæg breytileg átt. Rigning með köflum og kólnar heldur. Á miðvikudag: Vaxandi norðaustanátt og fer að rigna, einkum um sunnan- og austanvert landið. Hiti 6 til 13 stig, hlýjast suðvestantil. Á fimmtudag: Útlit fyrir norðanátt með rigningu og svölu veðri norðanlands, en mildari og úrkomulítið sunnan heiða. Á föstudag: Snýst líklega í vestlæga átt og dregur úr úrkomu með hita á bilinu 4 til 10 stig.
Veður Mest lesið Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Erlent Orbán játar sig sigraðan Erlent Lágflugið vekur athygli erlendis Innlent Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ Innlent Maður hífður upp úr Ölfusá Innlent Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Innlent Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Erlent Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Innlent Fleiri fréttir Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Hraða verði endurskoðun á endurgreiðslukerfinu Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Vonbrigði með tilmæli og bjórbann í Bláfjöllum Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Sjö á sjúkrahús eftir árekstur á Mosfellsheiði Maður hífður upp úr Ölfusá Farþegaþota í útsýnisflugi um hundrað metrum yfir Heimaey Ellefu framboðslistar á kjörseðli borgarbúa í vor Fjórar í valdastöðum á fréttamynd ársins Maður stunginn í heimahúsi á Akureyri Hafi áhrif á vísitöluna en vonandi væntingar líka Aðgerðirnar ekki til þess fallnar að koma í veg fyrir að forsenduákvæðið virkist Annar hvalrekinn á nokkrum dögum Fyrir þinginu að breyta svarmöguleikum þó enginn vafi leiki á umsóknarstöðu Til skoðunar að breyta svarmöguleikum á kjörseðli og sprenging í stofnun bókaklúbba Gæsluvarðhaldskröfu yfir Írisi hafnað Ók á tæplega tvöföldum leyfilegum hraða Spá enn vaxtahækkun í maí Gapandi búrhval rak á land: „Heljarinnar skepna“ Verzló hreppti hljóðnemann eftir sigur gegn MR Landskjörstjórn telur spurningu Þorgerðar gildishlaðna Góðan daginn býður góðan dag Óvæntur ríkisstjórnarfundur boðaður að kvöldi Sjá meira