Vindhviður gætu náð 35 metrum á sekúndu Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 15. september 2020 20:50 Gular viðvaranir eru í gildi á nokkrum stöðum á landinu á morgun. Veðurstofa Íslands
Veðurstofan varar við sunnan hvassviðri eða stormi á morgun og hefur gefið út gular viðvaranir á Faxaflóa, Breiðafirði, Vestfjörðum og Miðhálendinu. Sérstaklega er varað við vindstrengjum við fjöll sem gætu náð allt að 35 metrum á sekúndu. Þannig er ábending til vegfarenda á vef Vegagerðarinnar þar sem sagt er frá því að á norðanverðu Snæfellsnesi verði vindur byljóttur og hviður geti náð 35 metrum á sekúndu frá klukkan 11 til 20. Á vef Veðurstofunnar kemur einmitt fram að gul viðvörun taki gildi á Breiðafirði klukkan 11 og gildir hún til klukkan 20 annað kvöld. Er varað við sunnan hvassviðri eða stormi, 15-23 m/s með hvössum vindstrengjum við fjöll, 25-35 m/s, einkum á Snæfellsnesi. Aðstæður verða varasamar fyrir ökutæki sem taka á sig mikinn vind. Á Vestfjörðum er gul viðvörun í gildi frá 12-21: „Sunnan hvassviðri eða stormur 15-23 m/s með hvössum vindstrengjum við fjöll, 25-35 m/s, sérstaklega á heiðum og við Ísafjarðardjúp. Varasamt fyrir ökutæki sem taka á sig mikinn vind,“ segir á vef Veðurstofunnar og við Faxaflóa, þar sem gul viðvörun gildir frá 15-20, er sérstaklega varað við aðstæðum sem geta myndast við Hafnarfjall: „Sunnan hvassviðri 13-20 m/s með hvössum vindstrengjum við fjöll, 25-35 m/s, sérstaklega við Hafnarfjall. Varasamt fyrir ökutæki sem taka á sig mikinn vind.“ Nánari upplýsingar má nálgast á vef Veðurstofunnar.
Veður Mest lesið Biður Jón afsökunar Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Erlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Innlent Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Innlent Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Innlent Bakar til góðs næsta sólarhringinn Innlent Fleiri fréttir Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sjá meira