Beta og Barði gefa út lag saman í fyrsta skipti Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar 13. október 2020 16:31 Mynd eftir Laufeyju Jónsdóttur af Betu og Barða. Laufey Jónsdóttir
Listamennirnir Elísabet Eyþórsdóttir og Barði Jóhannsson gáfu út lag saman á miðnætti undir nafninu Redwood Moon en þau hafa unnið að verkefninu síðan í vor. Elísabet hefur gefið út tónlist undir nafninu Beta Ey og með systrum sínum undir nafninu Sísí Ey en Barði er þekktastur fyrir Bang Gang, Starwalker og Lady & Bird. Fyrsta sameiginlega tónlistarverkefni parsins er ábreiða af laginu The End of the World sem Skeeter Davis gerði frægt árið 1963. „Lagið er eitt af mínum uppáhalds lögum þannig að mér fannst ótrúlega gaman að gera ábreiðu af því með Barða. Það hefur svo fallegan sjarma þetta lag. Finnst það vera bæði svo fallegt og sorglegt,“ segir Beta. Ellen Kristjáns kynnti þau Betu og Barða fyrir ári síðan. Xi Sinsong - Pétur Fjeldsted Eins og bláber og pönnukökur Hugmyndin kviknaði í vor, en eins og þau orða það sjálf „í vaðandi Covid 19 stemningu.“ Tregafullt lagið er mjög í takt við tíðarandann en útgáfa þeirra Betu og Barða endar þó með björtum ævintýralegum melankólískum blæ. „Ég hef alltaf verið mikið fyrir svona hressa tónlist. Svo er textinn svo upplífgandi þar sem maður fær fullvissu um að allt tekur enda, heimurinn og líka Covid 19. Eða ekki,” segir Barði. Þau fengu til liðs við sig Laufeyju Jónsdóttur Illustrator til þess að töfra fram ævintýralegan heim og ná þeirri stemningu sem einkennir Redwood Moon. Teikningin er af Betu og Barða. „Við vorum alveg sannfærð um að Laufey væri rétta manneskja til að teikna þessa draumkenndu útópíu, en hún er algjör snillingur.” Parið var með fasta rútínu við upptökur en segjast líka hafa farið með möntrur og gert alls konar skrítna hluti eins og tónlistarfólki einu er lagið. Beta segir að þau blandist saman sem tónlistarmenn eins og frosin bláber og glúteinlausar pönnukökur. View this post on Instagram A post shared by Beta Ey (@betaey) on May 31, 2020 at 11:45am PDT Uppgötvaði ást á vampírum „Við kynntumst í óvæntum hádegismat fyrir ári síðan og Beta var mjög heillandi og hressandi,” segir Barði um það hvernig þau kynntust. „Mamma dró mig með sér á tónlistarfund sem hún átti með Barða. Það var geggjað gaman og við töluðum viðstöðulaust og mamma komst ekki að. Þarna uppgötvaði ég ást mína á vampírum. Takk mamma,“ bætir Beta við en hún er dóttir tónlistarfólksins og hjónanna Ellenar Kristjáns og Eyþórs Gunnarssonar. Beta segir að það sé skrítið að vera tónlistarmaður á Íslandi í þessum faraldri, enda sé eiginlega allt frekar skrítið í faraldrinum. „En það eru forréttindi að geta verið heima að semja tónlist.“ Parið segir að það sé heldur betur meira væntanlegt af þeirra samstarfi. „Það er ýmislegt framundan. Við erum með Redwood Moon saman og svo okkar eigin verkefni. Svo erum við að reyna að passa okkur að fá ekki Covid þannig að við erum alveg hætt að sleikja hurðarhúna í bili. Svo er líka Borat 2 að koma.“ Hér fyrir neðan er hægt að hlusta á lagið The End of the World í flutningi dúósins Redwood Moon.
Tónlist Ástin og lífið Tengdar fréttir Klara gefur út eigin tónlist: „Endaði með að gera heila plötu um þetta misheppnaða samband“ Söngkonan Klara Elíasdóttir gaf út nýtt lag í dag. Lagið Paralyzed gefur hún út undir nafninu Klara Elias og er myndbandið við lagið væntanlegt í kvöld. Þetta er fyrsta sólólag söngkonunnar og er plata væntanleg frá henni á næstu mánuðum. 7. október 2020 09:16 Bríet frumflutti plötuna með ljósasýningu undir stjörnubjörtum himni í Krýsuvík Sönkonan Bríet Ísis Elfar gaf út nýja plötu um helgina, Kveðja Bríet. Hún frumflutti plötuna með bílahlustun í yfirgefinni naumu í Krýsuvík. Platan er persónuleg og fjallar um það hvað djúp sár gróa hægt. 12. október 2020 08:39 Jónsi og Robyn senda frá sér hið „fullkomna popplag“ Jónsi og sænska poppstjarnan Robyn sendu í dag frá sér nýtt lag, Salt Licorice. Lagið er af væntanlegri sólóplötu Jónsa, hans fyrstu í áratug. Platan kemur út á vegum Krunk útgáfunnar þann 2.október. 30. september 2020 17:31 Mest lesið „Við munum ekki eldast saman“ Lífið Tæpur helmingur íbúa hefur séð myndina Bíó og sjónvarp „Ég fæ morgnana til að vera bara ég“ Tónlist Borðar það sem alltaf hefur verið til og léttist og léttist Lífið „Það er alveg hægt að vinna rifrildið, en þá tapar sambandið“ Makamál Aldrei litið betur út þrátt fyrir alvarlegt slys Lífið Ógleymanlegt fermingarpils enn í uppáhaldi Tíska og hönnun Fréttatía vikunnar: Hollywood stjörnur, þjóðarréttir og pólitík Lífið Ein lausn er að liggja hlið við hlið og fróa sér Lífið Geggjað heimatilbúið „Twix“ Lífið Fleiri fréttir „Ég fæ morgnana til að vera bara ég“ Rokkþyrstir geta tekið gleði sína á ný Sigga Ózk verður Ariana Grande og flytur til Noregs Ávísun á eilíf vonbrigði að elta góða veðrið Frumsýning á Vísi: Landsliðsmaður gefur út lag með pabba sínum Taylor Swift jafnaði met Beyoncé á VMA Myndaveisla: Ofurfjör á Októberfest Sáu ekki fyrir sér vinsældirnar en fagna nú 36 árum Sergio Mendes höfundur Mas Que Nada látinn Gáfu tóndæmi af Barfly í beinni Aldrei séð annað eins: IceGuys seldi nítján þúsund miða Herra Hnetusmjör stoltur eftir tryllta afmælishelgi Samtalið órjúfanlegur hluti af sköpuninni Ótrúlega slakandi raftónlistarhátíð í fimmtánda skiptið Segir Marr hafa stöðvað endurkomu The Smiths Fjörutíu blaðamönnum boðið en enginn mætti Stormaði út með látum en gafst svo upp á skrifstofustarfinu Dásamar Charlie XCX þrátt fyrir orðróminn Slíðra sverðin og boða endurkomu sveitarinnar Snorri valinn á lista 20 undir 30 hjá tímaritinu IQ Valin á lista efstu tuttugu hjá Norðurlöndunum Helgi Björns með splunkunýtt tónlistarmyndband Chappell Roan biður um frið: „Konur skulda ykkur ekki skít“ Aron Can með stóra tónleika erlendis Haustinu fagnað með tónleikum á Kaffi Flóru Nýdönsk og ADHD fá hvorar tvær milljónirnar „Ég á mjög auðvelt með að standa með þessu öllu saman“ Pétur Jökull er Pj Glaze Tileinkar lagið trans fólki: „Hefur verið mikill tilfinningarússíbani“ Ingi Bauer, VÆB og Stefán Berg bjóða upp á Stemningu Sjá meira
Klara gefur út eigin tónlist: „Endaði með að gera heila plötu um þetta misheppnaða samband“ Söngkonan Klara Elíasdóttir gaf út nýtt lag í dag. Lagið Paralyzed gefur hún út undir nafninu Klara Elias og er myndbandið við lagið væntanlegt í kvöld. Þetta er fyrsta sólólag söngkonunnar og er plata væntanleg frá henni á næstu mánuðum. 7. október 2020 09:16
Bríet frumflutti plötuna með ljósasýningu undir stjörnubjörtum himni í Krýsuvík Sönkonan Bríet Ísis Elfar gaf út nýja plötu um helgina, Kveðja Bríet. Hún frumflutti plötuna með bílahlustun í yfirgefinni naumu í Krýsuvík. Platan er persónuleg og fjallar um það hvað djúp sár gróa hægt. 12. október 2020 08:39
Jónsi og Robyn senda frá sér hið „fullkomna popplag“ Jónsi og sænska poppstjarnan Robyn sendu í dag frá sér nýtt lag, Salt Licorice. Lagið er af væntanlegri sólóplötu Jónsa, hans fyrstu í áratug. Platan kemur út á vegum Krunk útgáfunnar þann 2.október. 30. september 2020 17:31