Guðni Bergsson, formaður KSÍ, sagði í Sportpakka Stöðvar 2 í kvöld að mikil sátt hefði ríkt með 1. desember viðmiðið þegar það var gefið út í sumar. Þá skilur hann gremju félaganna sem töpuðu á ákvörðun KSÍ.
Guðni Bergsson, formaður Knattspyrnusambands Íslands, ræddi við Júlíönu Þóru Hálfdánardóttur í Sportpakka Stöðvar 2 í kvöld. Þar ræddi hann meðal annars af hverju KSÍ sett 1. desember sem lokadagsetningu á að klára Íslandsmótin í knattspyrnu sem og aðrar keppnir.
Viðtalið má sjá í heild sinni neðst í fréttinni.
Þá sagðist hann skilja pirring þeirra félaga sem komu hvað verst út úr ákvörðun KSÍ að hætta keppni á Íslandsmótinu þó aðeins hafi verið 30. október þegar sú ákvörðun var tekin.
„Það var almenn sátt um það - þegar þetta var kynnt í sumar – hvað við ætluðum okkur. Við stefndum að því að klára öll mót og höfum í raun leikið 90 prósent leikja á mótinu. Ekki alveg svo mikið í Pepsi Max karla en við höfum náð að klára opa mótsins. Við gáfum það út að það þyrfti að klára tvo þriðju til að fá niðurstöðu og að við myndum aldrei fara lengur en til 1. desember með mótið. Núna með þessar aðstæður og þessar takmarkanir gátum við ekki haldið áfram með von og óvon miðað við ástand leikmanna,“ sagði Guðni í samtali við Júlíönu fyrr í dag.
KR, Fram og Magni Grenivík eru allt félög sem eru ósátt með ákvörðun KSÍ enda tapa þau öll á henni. Magni fellur úr Lengjudeildinni þar sem liðið er með verri markatölu en Þróttur Reykjavík. Aðeins munar einu marki á markatölu liðanna og þá er Magni með betri innbyrðis viðureignir gegn Þrótti.
Guðni skilur gremju þeirra.
„Það kemur ekki á óvart. Það eru viss vonbrigði en maður áttar sig á þeim hagsmunum sem þar eru á ferð. Þeir hafa sína skoðun á þessu og vilja fara með sitt mál fyrir okkar dómstig og það er allra réttur svo við virðum og tökumst á við það,“ sagði formaður KSÍ að lokum.'