Ferðalangar frá Danmörku í sóttkví í Bretlandi vegna minkasmita Vésteinn Örn Pétursson skrifar 7. nóvember 2020 11:06 Kórónuveirusmit hafa komið upp í minkabúum víða um Danmörku. Vísindamenn hafa áhyggjur af stökkbreytingu veirunnar í minkum. Ole Jensen/Getty
Ferðalangar sem koma til Bretlands frá Danmörku þurfa nú að sæta 14 daga sóttkví við komuna til Bretlands. Bresk yfirvöld tóku ákvörðun um þetta í kjölfar stökkbreytingar kórónuveirunnar á minkabúum í Danmörku. Hið stökkbreytta afbrigði er talið ólíklegra til að vera móttækilegt fyrir bóluefni. Guardian hefur eftir Grant Shapps, samgöngumálaráðherra Bretlands, að hann skilji áhyggjur fólks, bæði í Danmörku og í Bretlandi. „Það er ástæða þess að við brugðumst skjótt við til þess að vernda landið og koma í veg fyrir útbreiðslu hér í Bretlandi,“ sagði Shapps. Dönsk heilbrigðisyfirvöld hafa greint frá því að minkar í búum víðs vegar um Danmörku hafi greinst með veiruna. Í sumum tilfellum hefur veiran síðan dreifst út í nærliggjandi samfélög. Því hafa yfirvöld í Bretlandi tekið ákvörðun um að ferðalangar frá Danmörku skuli nú sæta sóttkví við komuna. „Fólk sem nú er í Bretlandi getur klárað ferðalag sitt og fylgt þeim staðbundnu reglum sem eru í gildi,“ sagði Shapps. Hann benti þá Bretum í Danmörku á að kynna sér reglur stjórnvalda í Bretlandi á þar til gerðri vefsíðu.
Bretland Danmörk Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Mest lesið Kafarar sóttu mann úr bíl sem fór í höfnina Innlent Áttræð kona sakar bæinn um mismunun vegna trúar Innlent Árið gert upp í Kryddsíld 2024 Innlent „Sem þið höfðuð ekki pung til að geta staðið undir“ Innlent Vita ekki hvenær þau komast heim með líkamsleifar drengsins síns Innlent Kristrún ekki sein í Kryddsíld: „Ég skil ekki hvernig þetta var hægt“ Innlent Samfélagið í Árbæ harmi slegið vegna andláts Maciej Innlent Bak við tjöldin: Óheppileg hlátursköst og ráðherrar í ruglinu Innlent Ákall eftir réttmætari dreifingu á arði Innlent Yazan Tamimi er maður ársins Innlent Fleiri fréttir Íslenski fjárhundurinn viðurkenndur af Kennel samtökunum Fyrstu börn Beta-kynslóðarinnar fæðast á morgun Handtökuheimild á hendur forsetanum samþykkt Heiðrar lækna sína í miðri krabbameinsmeðferð Hóta Hútum sömu „aumu örlögum“ og Hamas og Hezbollah Trump kemur Johnson til bjargar Vöruðu við fuglum rétt fyrir slysið Skiptast á 300 föngum Fimm ákærðir í tengslum við andlát Liam Payne Farþegar heyrðu mikinn hvell við flugtak og vélinni nauðlent Tuga kílómetra slóð á hafsbotni hjá skemmda sæstrengnum Þetta orsakaði kuldabola sem herjaði á íbúa Nuuk Rannsaka flugflotann í kjölfar slyssins Uppskerubrestur og þungar horfur vegna veðurofsans Jimmy Carter látinn Sjö daga þjóðarsorg lýst yfir í Suður-Kóreu Urðu úti við leit að Stórfæti Smábarn einu skrefi frá því að falla fram af bjargi hjá eldgosi Olivia Hussey er látin Neyðarástand í Nuuk vegna straumleysis Fjöldi látinn eftir flugslys í Suður-Kóreu Forstjóri sjúkrahúss meðal 240 handtekinna Minnst fimmtán áfrýja í máli Pelicot Biðst afsökunar á „hörmulegu atviki“ Íslandsvinurinn OG Maco látinn Tveir látnir eftir skotbardaga í Noregi „Svarta ekkjan“ fannst látin Tíu ára drengur lést eftir bílslys á Ítalíu Barn meðal látinna í rútuslysi Þýska sambandsþingið leyst upp Sjá meira