Finnur Orri aftur í Breiðablik Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 10. nóvember 2020 13:43 Finnur Orri Margeirsson í fyrsta Evrópuleik Breiðabliks, gegn Motherwell 2010. getty/Craig Halkett
Finnur Orri Margeirsson er genginn í raðir Breiðabliks frá KR. Hann snýr því aftur á heimaslóðir en Finnur hóf ferilinn með Blikum og lék með þeim til 2014. Finnur var lykilmaður í liði Breiðabliks sem varð bikarmeistari 2009 og Íslandsmeistari árið eftir. Hann er tíundi leikjahæsti leikmaður í sögu Breiðabliks með 243 leiki og var um tíma fyrirliði liðsins. „Það er frábært að fá Finn Orra aftur í Breiðablik þar sem hann á heima. Hann er mikill leiðtogi bæði innan og utan vallar og leikmaður sem á eftir að styrkja Blikaliðið verulega á næstu árum,“ segir Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari Breiðabliks. Eftir stutt stopp hjá FH gekk Finnur í raðir Lillestrøm í Noregi og lék þar tímabilið 2015. Hann kom svo aftur heim og fór í KR. Finnur varð Íslandsmeistari með KR á þarsíðasta tímabili. Hjá Breiðabliki hittir Finnur m.a. fyrir yngri bróður sinn, Viktor Örn, sem og félaga sína úr Íslands- og bikarmeistaraliðinu, þá Kristin Steindórsson, Elfar Frey Helgason og Andra Rafn Yeoman. Finnur Orri, sem er 29 ára, hefur leikið 229 leiki í efstu deild og skorað eitt mark. Breiðablik endaði í 4. sæti Pepsi Max-deildar karla á síðasta tímabili og náði Evrópusæti.
Pepsi Max-deild karla Breiðablik Mest lesið Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár Formúla 1 Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti Félag Örnu og Fanneyjar gat ekki borgað laun Fótbolti „Enski boltinn er annar heimur“ Enski boltinn Grealish í agabanni hjá Everton Enski boltinn Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Sjá meira