Lífið

Mannskemmandi að horfa upp á ástvin fjara út

Stefán Árni Pálsson skrifar
Ástrós Rut ásamt Emmu í vikunni. Hún eignaðist hana með Bjarka Má árið 2018. Nú á hún von á sínu öðru barni.
Ástrós Rut ásamt Emmu í vikunni. Hún eignaðist hana með Bjarka Má árið 2018. Nú á hún von á sínu öðru barni. vísir/vilhelm

Ástrós Rut Sigurðardóttir stóð við hlið eiginmanns síns Bjarka Más Sigvaldasonar sem barðist við krabbamein í sjö ár. Hann féll frá í júní á síðasta ári og höfðu þau þá náð að eignast stúlku saman, hana Emmu Rut sem kom henni í raun í gegnum erfiðustu stundirnar í sorginni.

Ástrós er gestur vikunnar í Einkalífinu en í dag er hún komin í samband með Davíð Erni Hjartarsyni sem á sjö ára dreng úr fyrra sambandi.

Saman eiga þau von á barni á næsta ári. Ástrós segir að síðastliðið rúma ár hafi verið gríðarlega erfitt og heldur betur reynt á andlegu hliðina. Það hafi tekið á að fylgjast með dauðastríði eiginmanns síns á hliðarlínunni og geta lítið sem ekkert gert.

„Ég held að það sé mannskemmandi og það allavega breytti mér,“ segir Ástrós og heldur áfram.

„Að horfa upp á ástvin fjara út er skelfilegt og það brýtur mann að innan en það gerir mann líka sterkari fyrir vikið. Ég get gert hluti í dag sem ég gat ekki gert fyrir tíu árum síðan og ég horfi öðruvísi á hlutina í dag. Ég finn það að ég er miklu sterkari inni í mér og ég finn að það er svo margt sem ég á eftir að gera og það sem ég vil gera.“

Klippa: Einkalífið - Ástrós Rut Sigurðardóttir

Ástrós segir að þessi skelfilega lífsreynsla hafi vissulega brotið hana algjörlega niður en á saman tíma byggt hana upp í nýjan karakter.

„Þetta er mögulega eitthvað sem ég hefði viljað sleppa við en maður þarf að taka það góða og mikilvæga út úr þessu erfiða verkefni. Þetta hefur gert mig að betri manneskju í dag, ég er þroskaðri, sterkari og get tekist á við erfið verkefni. En að sitja á hliðarlínunni og geta ekki hjálpað manneskjunni sem maður elskar er rosalega erfitt. Þú ert svo hjálparlaus og manneskjan er kannski að engjast um af kvölum og þú getur ekkert gert, það er hrikalegt. Þetta er kannski svipað og þegar karlmenn eru hjá konunni sinni sem er að fæða. Hún er kannski að engjast um af sársauka og þeir geta ekkert gert og bara peppað hana áfram.“

Í þættinum hér að ofan ræðir Ástrós einnig um hvernig það hafi verið að standa ein eftir fráfall Bjarka og sjá framtíðina fyrir sér, að það hafi alltaf verið markmiðið hennar að eignast stóra fjölskyldu, hvernig kerfið er þegar fólk berst við krabbamein, um samband hennar og Davíðs, og hvernig hún sér framtíðina fyrir sér.


Tengdar fréttir

Alkóhólismi föður míns hefur litað allt mitt líf

Sigrún Ósk Kristjánsdóttir er orðin ein reynslumesta og vinsælasta fjölmiðlakona landsins. Á undanförnum árum hefur hún vakið gríðarlega mikla athygli fyrir þættina Leitin að upprunanum sem hafa verið á dagskrá á Stöð 2.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×