Auðvelda fyrirtækjum að gleðja starfsfólk Vorhús 12. nóvember 2020 09:26 Hönnunarhúisð Vorhús býður fjölbreytt úrval hönnunarvara eftir íslenska hönnuði
Hönnunarhúsið Vorhús býður fyrirtækjum sérstaka þjónustu til að auðvelda gjafakaup handa starfsfólki. Með fyrirtækjaaðgangi á vefverslun Vorhus.is geta vinnuveitendur nýtt þægilegt pöntunarferli og nálgast fallega gjafapakka fyrir starfsmennina allan ársins hring. Vöruúrvalið spannar fallegar og vandaðar hönnunarvörur til heimilisins en Vorhús hefur ávallt lagt áherslu á fjölbreytt vöruúrval sem henti breiðum hópi. Sigríður Haraldsdóttir og Eydís Ólafsdóttir, hönnuðir og eigendur hönnunarverslunarinnar Vorhús á Akureyri. „Okkur langaði til þess að einfalda aðgengi að flottum gjafapökkum með einföldu og þægilegu pöntunarferli í takt við breyttar áherslur fyrirtækja í starfsmannagjöfum. Fyrirtækin stofna aðgang á vefversluninni undir flipanum „fyrirtækjagjafir“ og fá aðgang að fjölbreyttum gjafapökkum og tilboðum,“ útskýrir Eydís Ólafsdóttir, markaðs- og sölufulltrúi Vorhúsa. Hún segir ferlið auðvelda fyrirtækjum að finna réttu gjöfina og það spari jafnframt tíma. Einnig er öllum gjöfum pakkað fallega inn og þær sendar á vinnustaði á þeim tíma sem óskað er eftir hverju sinni. Fjallasýn Samstaða er mikilvæg á umbrotatímum Eydís segir mikilvægt að standa vörð um íslensk fyrirtæki í dag. „Ástandið sem ríkir í dag bitnar á ólíkum rekstri og samstaða er mikilvæg á svona tímum. Ég held því að gjafir frá innlendum frameiðendum og hönnuðum muni falla vel í kramið þessi jólin. Nú þegar hafa fjölmörg fyrirtæki skráð sig á vefinn og sent inn pantanir og vonir standa til að fleiri grípi tækifærið.“ Línan Einiber eftir Eydísi Fallegar hönnunarvörur og nýjungar frá Vorhús Eydís er einn af hönnuðum og eigendum Vorhús og hönnuður nýrrar jólalínu, Einiber. Línan samanstendur af viskustykkjum, servíettum, skurðarbrettum og viðarbökkum. Von er á einiberjakransi úr tini og pappírskramarhúsi í sömu línu. Innblásturinn sótti Eydís í þá íslensku hefð að nota eini í jólatré og skreytingar á árum áður. Línan Villiblóm eftir Sigríði Haraldsdóttur Sigríður Haraldsdóttir er einnig einn af hönnuðum og eigendum Vorhús. Ný hönnunarlína úr hennar smiðju kallast Villiblóm, sem samanstendur af viskustykkjum og servíettum en von er á fleiri vörum með mynstrinu á nýju ári. Innblásturinn er sóttur til villtra blóma og fegurðinnar í hinu smáa. Thermobollar, skálar og diskar eftir Sveinbjörgu Hallgrímsdóttur Einiberjakrans eftir Eydísi Allar nánari upplýsingar og vöruúrval er að finna á Vorhus.is
Jól Lífið Hús og heimili Mest lesið „Við sem neytendur eigum ekki að sætta okkur við þetta“ Viðskipti innlent Z-kynslóðin fílar ekki stjórnunarstílinn og hættir Atvinnulíf Skella sér í sósur og ís fyrir fjóra milljarða Viðskipti innlent Virða niðurstöðu Íslandsbanka Viðskipti innlent Rukka í „rennuna“ á flugvellinum Neytendur Forstjóri ÁTVR lætur af störfum Viðskipti innlent Mátti greiða himinháan reikning korter í þrot eftir allt saman Viðskipti innlent Björn hvergi af baki dottinn í milljarðadeilu Viðskipti innlent Íslandsbanki afþakkar boð Arion um samrunaviðræður Viðskipti innlent „Að stjórn skelli skuldinni á tæknistarfsmann er einfaldlega ekki í boði“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Vetrarferð á verðlaunuðum rafbíl Iðnaðarhurðir sem henta íslenskum aðstæðum Plastkubbahús sem eru íslensk hönnun og framleiðsla Slippfélagið eflir þjónustu með gervigreind BYKO með ánægðustu viðskiptavinina áttunda árið í röð Greiðsluáskorun Rafbílaeigendur hljóta að hafa stáltaugar Bóndi í Borgarfirði keyrði Skoda-bíl yfir milljón kílómetra Góð kjör á afmælissýningu Toyota Sjá meira