Framúrskarandi fyrirtæki

Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma

Ragnheiður Tryggvadóttir skrifar
„Þú ert aðeins vissari um að þú sért að versla við traustan aðila og viðskipti ganga út á traust,“ segir Hrefna Sigfinnsdóttir, framkvæmdastjóri Creditinfo um þau fyrirtæki sem hljóta vottunina Framúrskarandi fyrirtæki.
„Þú ert aðeins vissari um að þú sért að versla við traustan aðila og viðskipti ganga út á traust,“ segir Hrefna Sigfinnsdóttir, framkvæmdastjóri Creditinfo um þau fyrirtæki sem hljóta vottunina Framúrskarandi fyrirtæki.

Creditinfo veitti framúrskarandi fyrirtækjum viðurkenningu fyrir góðan og traustan rekstur, sautjánda árið í röð. Viðburðurinn fór fram í Hörpu þann 28. október. Tæplega 1.220 fyrirtæki komust á listann í ár, samanborið við 1.155 á síðasta ári.

Hrefna Sigfinnsdóttir hjá Creditinfo segir mætinguna hafa verið afar góða og stemninguna eftir því. Það sem veki þó mesta athygli hennar á listanum í ár sé hversu mörg fyrirtæki hafi haldið stöðu sinni frá upphafi.

„Það sem kemur mér allra mest á óvart er að það séu tæplega 50 fyrirtæki á Íslandi sem hafa verið á listanum frá upphafi, það er að segja í 17 ár. Það sýnir alveg ótrúlega þrautseigju.“

Spurð hvað framúrskarandi fyrirtæki eiga sameiginlegt segir Hrefna forsvarsmenn fyrirtækjanna sammála um eitt.

„Það er einn rauður þráður sem allir nefna og það er framúrskarandi starfsfólk. Það er eitthvað sem skín í gegn, að það er lykillinn að vera með gott fólk í vinnu.“

Langflest brugðust við nýrri kröfu

Fyrirtækjum á listanum fjölgar lítillega milli ára. Hrefna bendir á að matið byggist á rekstri síðustu þriggja ára, 2023, 2024 og 2025. Niðurstöður yfirstandandi árs liggi því ekki til grundvallar.

Nú er jafnframt gerð krafa um að fyrirtæki sem falla undir lög um kynjahlutföll í stjórnum uppfylli þau til að komast á listann. Hrefna segir að við nánari greiningu hafi komið í ljós að töluvert mörg fyrirtæki hafi ekki uppfyllt lögin.

„Ef það eru lög þá þarf náttúrulega að fara eftir lögum,“ segir hún.

Fyrirtækin fengu um árs fyrirvara til að bregðast við kröfunni og segir Hrefna langflest hafa nýtt þann tíma til breytinga. „Langflest fyrirtækin brugðust við. Við kynntum þetta með mjög góðum fyrirvara, þannig að þau höfðu góðan aðlögunartíma, en það voru vissulega einhver fyrirtæki sem ákváðu að breyta ekki.“

Traust skiptir mestu

Að mati Hrefnu felst gildi viðurkenningarinnar gagnvart viðskiptavinum fyrst og fremst í trausti.

„Þú ert aðeins vissari um að þú sért að versla við traustan aðila og viðskipti ganga út á traust.“

Hún hvetur stjórnendur sem stefna á listann á næsta ári til að byrja á því að kynna sér kröfurnar vel. Þá sé mikilvægt að endurskoðendur aðstoði fyrirtækin við að halda þeim atriðum í lagi sem þurfa að standast matið. Grunnurinn sé þó alltaf vandaður daglegur rekstur.

„Síðan er það náttúrulega bara að borga reikninga á réttum tíma og reka sig eins vel og hægt er.“

Þessi grein er hluti af stamstarfi Sýnar og Creditinfo um Framúrskarandi fyrirtæki.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×