Innlent

Móðir Ævars Annels biðlar til fólks að segja frá

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Myndirnar af Ævari Annel sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu birti í tengslum við leitina að honum.
Myndirnar af Ævari Annel sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu birti í tengslum við leitina að honum.

Leit lögreglu að Ævari Annel Valgarðssyni, tvítugum Reykvíkingi, hefur engan árangur borið. Hans hefur verið leitað síðan á föstudaginn þegar lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsti eftir honum.

Elínborg Jenný Ævarsdóttir, móðir Ævars, bað fólk í færslu á Facebook í gær um að láta vita ef það hefði einhverjar upplýsingar um hvar hann væri. Hún segist í samtali við Vísi hafa heyrt í honum fyrir þremur dögum en ekki vita hvar hann haldi sig.

Lögreglan hafi komið á heimili hennar og leitað hans. Hún sé heilt yfir róleg vegna sonar síns en ítrekar að fólk veiti lögreglu upplýsingar ef það viti nokkuð.

A.T.H ! Elsku sonur minn Ævar Annel Valgarðsson Er eftirlýstur af Lögreglunni og ég Og öll fjölskylda hans viljum...

Posted by Jenný Ævarsdóttir on Tuesday, November 24, 2020

Samkvæmt heimildum fréttastofu tengist leitin að Ævari Annel rannsókn lögreglu á máli tæplega þrítugs karlmanns, lærðs bardagaíþróttamanns, sem úrskurðaður var í tveggja vikna gæsluvarðhald á föstudaginn. Meðal gagna í málinu er myndband sem bardagamaðurinn birti af sér ráðast á Ævar Annel.

Bardagamaðurinn birti myndbandi á Facebook-síðu sinni sunnudaginn 15. nóvember þar sem það var sýnilegt í vel á annan sólarhring. Myndbandið var fjarlægt í framhaldi af handtöku bardagamannsins.

Tveimur dögum síðar, þriðjudaginn 17. nóvember, var bensínsprengju kastað inn í íbúð í fjölbýlishús við Friggjarbrunn í Úlfarsárdal og kviknaði í. Bardagamaðurinn mun hafa búið í íbúðinni en enginn var á vettvangi þegar lögreglu og slökkvilið bar að garði. Hratt gekk að slökkva eldinn.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu réðst svo í nokkuð umfangsmiklar aðgerðir að kvöldi fimmtudagsins 19. nóvember sem stóðu fram á nótt. Ráðist var í húsleitir og tveir karlmenn á þrítugsaldri handteknir. 

Bardagaíþróttamaðurinn er annar þeirra en fréttastofa þekkir ekki deili á hinum. Sá fyrrnefndi var úrskurðaður í tveggja vikna gæsluvarðhald á grundvelli rannsóknarhagsmuna.

Lögregla hefur ekki viljað tjá sig um ástæður þess að Ævars Annels sé leitað. Valgarð Kjartansson, faðir Ævars, tjáði DV um helgina að Ævar hefði fjarvistasönnun og hefði ekki verið á vettvangi við Friggjarbrunn kvöldið sem bensínsprengju var kastað í húsið í Friggjarbrunni.

Fjölmörg myndbönd þar sem bardagamaðurinn og Ævar Annel koma við sögu eru í dreifingu manna á milli á samfélagsmiðlum, í Messenger á Facebook. Þar má sjá mikið ofbeldi, sumt á götum úti en annað inni í íbúð, en ekki fylgir sögunni hvenær myndböndin voru tekin upp eða hver tók þau upp.


Tengdar fréttir

Húsleit og handtökur vegna bruna, líkamsárása og hótana

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu réðst í nokkuð umfangsmiklar aðgerðir á höfuðborgarsvæðinu í gær og seint í gærkvöldi sem lauk með handtöku tveggja karlmanna. Þetta herma heimildir fréttastofu.

Krafðist „vanvirðingargjalds“ og kýldi konu

Karlmaðurinn sem birti myndband af sér á Facebook um síðustu helgi þar sem hann gengur í skrokk á öðrum manni fékk dæmdar 1,5 milljónir króna í bætur vegna líkamsárásar sem hann varð fyrir í ágúst í fyrra. Ákærði í málinu hlaut tæplega fjögurra ára dóm.

Kviknaði í íbúð mannsins sem birti árásina á Facebook

Rannsókn er hafin á eldsupptökum í fjölbýlishúsi í Úlfarsárdal í Reykjavík í gærkvöldi. Íbúðin var vettvangur ljótrar líkamsárásar sem birt var myndband af á Facebook um helgina. Enginn var heima þegar slökkvilið mætti á vettvang og sinnti slökkvistarfi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×