Kári Árnason búinn að skrifa undir nýjan samning við Víkinga Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. desember 2020 12:01 Kári Árnason og Arnar Gunnlaugsson í Víkinni í dag. vísir/sigurjón Kári Árnason og Þórður Ingason skrifuðu í dag undir eins árs samning við Víking og verða því með Fossvogsliðinu í Pepsi Max deild karla sumarið 2021.
Víkingar héldu blaðamannafund í hádeginu þar sem þeir Kári og Þórður gengu endanlega frá nýjum samningnum sínum. Miðvörðurinn Kári Árnason snéri aftur heim til Víkings sumarið 2019 og hefur leikið 22 leiki með liðinu undanfarin tvö tímabil. Víkingar unnu sinn fyrsta titil í 28 ár eftir að Kári mætti í Víkina en hann missti þó af bikarúrslitaleiknum vegna meiðsla. Markvörðurinn Þórður Ingason kom líka til Víkings fyrir 2019 tímabilið, hjálpaði Víking að verða bikarmeistari haustið 2019 en var varamarkvörður Ingvars Jónssonar í sumar. Kári var í fyrrasumar að snúa til baka til uppeldisfélagsins síns eftir fimmtán ár úti í atvinnumennsku. Hann mun nú spila fyrir Víking á 39. aldursárinu. Þórður er 32 ára gamall. Kári lék mögulega sinn síðasta A-landsleik á Wembley á dögunum en landsleikirnir eru orðnir 87 talsins þar af 64 þeirra eftir að Kári hélt upp á þrítugsafmælið sitt í október 2012. Kári talaði um það eftir síðasta landsleik sinn að hann gæti ekki endað ferill sinn með Víkingum svona og að hann ætlaði að spila eitt ár í viðbót. Kári náði ekki að spila síðustu leiki liðsins í sumar vegna meiðsla og svo var tímabilið flautað af. Kári hefur nú staðið við þau stór orð með því að skrifa undir nýjan samning. Víkingar hafa verið að bæta við sig mönnum því þeir hafa þegar fengið til sín hinn reynslumikla Pablo Punyed frá KR og hinn unga Axel Frey Harðarson frá Gróttu.
Pepsi Max-deild karla Víkingur Reykjavík Mest lesið Liverpool má ekki taka á móti Real Madrid í Meistaradeildinni Fótbolti Dönsk landsliðsstjarna dæmd Fótbolti Hundrað metra met Bolt „fallið“ Sport Ótrúlega ósáttur við Val: „Hafa skilið mann eftir einan í myrkrinu“ Handbolti Golfáhrifavaldar í klandri vegna umdeildrar auglýsingar Golf Heiðursmannasamkomulag var svikið: „Kom okkur á óvart“ Handbolti Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Enski boltinn Guðjón Valur framlengir við Gummersbach Handbolti Raheem Sterling ákærður Enski boltinn Pirraður Ronaldo tekinn af velli og liðinu gekk betur einum manni færri Fótbolti Fleiri fréttir Ræddu innkomu Eiðs Smára: „Mér finnst stórfurðulegt að Hallgrímur sé enn þá þarna“ Tókust á í beinni um atvikið umdeilda upp á Skaga Ætlar að rústa markametinu og skora 30 mörk Létu leikmenn og stjórn Stjörnunnar heyra það: „Skandall, fáránlegt og ljótt“ Sjáðu sjö marka veisluna í sigri Fram Kópavogi í gær Kom inn á fyrir KR aðeins 14 ára „Maður var aldrei alveg rólegur“ Uppgjörið: Breiðablik - Fram 3-4 | Fram kláraði dæmið í fyrri hálfleik Ágúst Orri mættur í hollensku úrvalsdeildina Hræðileg nýting Blika í hornum: „Eins og þetta sé ekkert æft“ „Fæ skítinn í fangið strax frá fyrsta degi“ Átta marka veisla í fyrsta leik Eiðs Smára og Víkingsvélin mallar áfram Uppgjörið: Víkingur - Valur 2-0 | Frábærar tíu mínútur voru nóg í Víkinni Kvaddi stuðningsmenn Víkings: „Það er hluti af mér núna“ „Aron er frábær leikmaður en ég vil samt fá meira frá honum“ Uppgjörið: KA - KR 3-5 | Aron með þrennu fyrir norðan „Fiðringurinn breyttist smá í að kúgast annað slagið“ Haukar komnir upp í Lengjudeildina Uppgjörið: ÍA - FH 1-1 | Jafnt á Skaganum Uppgjörið: Keflavík - ÍBV 1-0 | Keflvíkingar tengdu saman sigra í fyrsta skipti í sumar Uppgjörið: Stjarnan - Þór 4-2 | Stjarnan sýndi sparihliðarnar með nýja menn við stjórnvölinn Sara skoraði tvö og Haukar fóru upp í annað sætið Njarðvíkingar stöðvuðu sigurgöngu Húsvíkinga Ísfirðingar geta andað léttar HK vann enn einn heimaleikinn og Fylkir flengdi Grindavík Sjáðu Bergdísi bjarga botnliðinu, kraftaverk Lillýar og óheppni fyrirliðans „Kærkomið að fá eitt svona mark“ „Ég skora náttúrulega ekki oft þannig að þetta er eiginlega kraftaverk“ „Ég þekki náttúrulega Ásdísi svolítið vel“ Sjáðu Eið Smára stýra sinni fyrstu æfingu með KA Sjá meira