Of margir í messu í Landakotskirkju í dag Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 3. janúar 2021 14:50 Landakotskirkja. Vísir/Sigurjón Allt of margir voru komnir saman til messu í Landakotskirkju á öðrum tímanum í dag og mætti lögreglan á staðinn og ræddi við sóknarprest. Rúv greinir frá.
Málið ku vera til rannsóknar hjá lögreglu en að því er Rúv greinir frá var fjöldi kirkjugesta langt yfir leyfilegum hámarksfjölda miðað við gildandi fjöldatakmarkanir. Rúv birtir myndskeið með frétt sinni þar sem glögglega má sjá hve margir eru saman komnir í kirkjunni og sést lögregluþjónn telja hausa í kirkjunni á meðan athöfnin stendur yfir. Líkt og fram kom í fjölmiðlum á jóladag hafði lögreglan einnig afskipti af helgihaldi í kirkjunni á aðfangadag þar sem of margir voru saman komnir til að sækja jólamessu. Jakob Rolland, kanslari biskupsdæmis kaþólsku kirkjunnar á Íslandi og upplýsingafulltrúi, sagði í samtali við fréttastofu á jóladag að mögulega hafi presturinn sem messaði í kirkjunni á aðfangadagskvöld ekki áttað sig nægilega vel á gildandi sóttvarnareglum. Um pólska messu hafi verið að ræða og taldi lögregla hátt í annað hundrað manns þegar hún mætti á svæðið. Fréttastofa hefur hvorki náð sambandi við lögreglu né talsmenn Kaþólsku kirkjunnar á Íslandi við vinnslu fréttarinnar. Fréttin hefur verið uppfærð.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Samkomubann á Íslandi Trúmál Reykjavík Mest lesið Grunaðir um að skiptast á að nauðga konu Innlent Krefja blaðamann Samstöðvarinnar um fimmtán milljónir Innlent Icelandair þurfi að kannast við reglur réttarríkisins Innlent Óttast að maður hafi fallið í Hlauptungufoss Innlent Demókratar uggandi yfir niðurstöðum skoðanakannana Erlent Vandasöm andlitslömun sem greinist vikulega á Íslandi Innlent Sviku út tugi milljóna með því að þykjast vera Brad Pitt Erlent Skutu viðvörunarskotum að norsku skipi í norskri lögsögu Erlent Segir gagnrýni kvenna á leikskólastefnu Kópavogs tvískinnung Innlent Fjarðarheiði lokuð og bílar fastir Innlent Fleiri fréttir Landris og kvikusöfnun heldur áfram Baldur greiddi fjórðung kostnaðar við framboð sitt sjálfur Óttast að maður hafi fallið í Hlauptungufoss Garðabæ óheimilt að skerða þjónustu við ellefu ára stúlku Bein útsending: Málþing um fóstur- og nýburaskimanir Svandís vill formannsstólinn og það hægir á íbúðauppbyggingu Fjarðarheiði lokuð og bílar fastir Bjarkey ekki undir feldi Segir gagnrýni kvenna á leikskólastefnu Kópavogs tvískinnung Einn á slysadeild eftir árekstur tveggja hlaupahjóla Icelandair þurfi að kannast við reglur réttarríkisins Pallborðið: „Taumlaus græðgi“ eða verðið á hveiti? Svandís gefur kost á sér og vill kosningar í vor Fara fram á áframhaldandi gæsluvarðhald yfir föðurnum Mál Samherja gegn Odee tekið fyrir dóm í vikunni Grunaðir um að skiptast á að nauðga konu Krefja blaðamann Samstöðvarinnar um fimmtán milljónir Slagsmál, líkamsárásir og ellefu í fangageymslum Þarf ekki að skerða heitt vatn í vetur vegna nýrrar borholu Erfið umræða sem fólk hafi veigrað sér við að taka Vandasöm andlitslömun sem greinist vikulega á Íslandi Forréttindi fyrir fámenna þjóð að hafa jafn öflugar flugsamgöngur „Þetta er ekki átak til einhverra daga eða vikna“ Skilur að fólk sé hugsi yfir mögulegum skyldleika við sæðisgjöf Úkraínumenn berjist með „aðra hönd bundna fyrir aftan bak“ Ringulreið á lánamarkaði Jódís fer fram gegn Guðmundi Inga í varaformann VG Býður sig ekki fram til formanns og styður Svandísi Ótti um allsherjarstríð, ringulreið á lánamarkaði og íslenskir sæðisgjafar „Vonumst til að sem flestir fari svo í óverðtryggð íbúðalán“ Sjá meira