Spá allt að fjórtán stiga frosti Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 6. janúar 2021 07:34 Það verður ansi kalt á landinu á morgun eins og sést á þessu hitaspákorti Veðurstofunnar sem gildir fyrir klukkan tólf á hádegi á fimmtudag. Veðurstofa Íslands Það er tiltölulega rólegt veður þessa dagana með sterkar hæðir í kringum okkur en í dag er spáð norðvestlægri átt, fimm til þrettán metrum á sekúndu og bjartviðri.
Þó má gera ráð fyrir lítilsháttar éljum fyrir norðan og austan og þá kólnar með deginum; frost verður á bilinu tvö til átta stig. Þetta kemur fram í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands. Veðrið verður síðan enn rólegra á morgun, breytileg átt þrír til átta metrar á sekúndu og áfram víða léttskýjað. Það kólnar enn frekar og verður frost á bilinu þrjú til fjórtán stig, kaldast verður í innsveitum á norðanverðu landinu. Seinnipartinn á morgun bætir svo í vind vestantil og þykknar upp með snjókomu og síðan rigningu. Það hlýnar og verður hiti um og yfir frostmarki vestast annað kvöld. Veðurhorfur á landinu: Norðvestan 5-13 m/s og bjartviðri, en lítilsháttar él á Norður- og Austurlandi. Kólnandi veður, frost 2 til 8 stig síðdegis. Breytileg átt 3-8 m/s framan af morgundeginum, áfram víða léttskýjað og frost 3 til 14 stig, kaldast inn til landsins. Bætir í vind vestantil á landinu síðdegis á morgun, þykknar upp þar með snjókomu og síðar rigningu og hlýnandi veðri. Á fimmtudag: Breytileg átt 3-8 m/s framan af degi, víða léttskýjað og frost 3 til 14 stig, kaldast inn til landsins. Bætir í vind vestantil á landinu síðdegis, þykknar upp þar með snjókomu og síðar rigningu og hlýnandi veðri. Á föstudag: Suðvestan 13-20 og rigning eða slydda, en þurrt að kalla austantil á landinu. Hiti 2 til 7 stig. Snýst í vestan og norðvestan 13-20 um kvöldið með snjókomu, einkum á norðan- og vestanverðu landinu. Ört kólnandi veður. Á laugardag: Norðvestan 13-20 og dálítil él á Norður- og Austurlandi, hvassast á norðausturhorninu. Hægari vindur og bjart að mestu sunnantil. Frost 4 til 10 stig. Á sunnudag: Norðan 5-10 og léttskýjað, en norðvestan 10-15 og lítilsháttar él um landið norðaustanvert. Áfram kalt í veðri.
Veður Mest lesið Biður Jón afsökunar Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Erlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Innlent Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Innlent Bakar til góðs næsta sólarhringinn Innlent Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Innlent Fleiri fréttir Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sjá meira