Viðskipti innlent

Fjörutíu þúsund heimili með Stöð 2+ og áskriftarsala tvöfaldast

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Kvöldfréttatími Stöðvar 2 er nú aðeins aðgengilegur áskrifendum en þó er hægt að hlusta á hann á Bylgjunni.
Kvöldfréttatími Stöðvar 2 er nú aðeins aðgengilegur áskrifendum en þó er hægt að hlusta á hann á Bylgjunni.

Fjörutíu þúsund heimili landsins eru með aðgang að efnisveitunni Stöð 2+ (áður Maraþon) og áskriftarsala í janúar 2021 er tvöföld á við það sem hún var í fyrra. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Stöð 2.

Þann 18. janúar var ákveðið að Stöð 2 yrði áskriftarstöð að öllu leyti sem þýddi að dagskrárefni á borð við kvöldfréttatíma Stöðvar 2, sem hafði verið í opinni dagskrá í rúmlega 34 ár, varð aðeins aðgengilegur áskrifendum. 

Um leið var boðið upp á áskrift að Stöð 2 og Stöð 2+ fyrir 7990 krónur á mánuði og áskriftarskilmálar gerðir sveigjanlegir.

Fjallað var um breytingarnar á dögunum, eins og sjá má í fréttinni að neðan.

Sigurður Amlín Magnússon, forstöðumaður sölu- og þjónustustviðs Stöðvar 2, segir gaman að sjá jákvæð viðbrögð við breytingunum.

„Sala á áskriftum að Stöð 2, Stöð 2+ og Stöð 2 Sport er umtalsvert hærri en á sama tíma í fyrra og enn nokkrir dagar eftir af janúar mánuði. Nýtt verð og sveigjanlegri áskriftarskilmálar eru að fá mjög góðar viðtökur hjá landsmönnum sem er virkilega ánægjulegt,“ segir Sigurður í tilkynningunni.

Þar kemur jafnframt fram að 300 prósenta aukning hafi orðið í áhorfi á efnisveituna Stöð 2+ og í dag hafi rúmlega fjörutíu þúsund heimili aðgang að veitunni.

„Við erum í dag með fjölbreytt úrval afþreyingar, bæði hágæða línulega dagskrá og beinar útsendingar á íþróttum en ekki síst gríðarlega öfluga efnisveitu sem fer sífellt stækkandi, bæði hvað varðar efni og áskrifendur. Samanburður á heildaráhorfi okkar við línulega dagskrá RÚV er ekki réttur enda aðeins hluti áhorfs okkar í línulegri dagskrá. Áhorf á Stöð 2+ er utan mælinga Gallup en þar hafa yfir 40.000 heimili aðgang og notkun eykst í hverjum mánuði. Við fögnum frábærum viðbrögðum markaðarins og hlökkum til þess að efla efnisframboð okkar og þjónustu enn frekar næstu misseri,“ segir Heiðar Guðjónsson forstjóri Stöðvar 2 í tilkynningunni.

Vísir og Stöð 2 eru í eigu Sýnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×