Nýtt afbrigði veirunnar breiðist hratt út í New York Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 25. febrúar 2021 10:59 Áhorfendur sjást hér tínast inn í Madison Square Garden í New York á þriðjudag til að fylgjast með leik New York Knicks og Golden State Warriors. Var þetta í fyrsta skipti sem áhorfndur voru leyfðir í höllinni síðan faraldurinn skall á. Getty/John Smith Nýtt afbrigði kórónuveirunnar hefur skotið upp kollinum í New York og breiðist nú hratt út í borginni. Stökkbreytingin veldur vísindamönnum nokkrum áhyggjum þar sem þeir óttast að hún veiki virkni bóluefna gegn veirunni.
Afbrigðið er kallað B.1.526 og greindist fyrst í sýnum sem tekin voru í New York í nóvember. Um miðjan þennan mánuð var fjórða hvert sýni sem raðgreint var í gagnagrunni sem vísindamenn deila af þessu tiltekna afbrigði. Í frétt New York Times segir að tvær rannsóknir hafi nú þegar verið gerðar á afbrigðinu. Önnur birtist á netinu á þriðjudag en hin rannsóknin hefur ekki verið gerð opinber. Sú fyrri er leidd af vísindamönnum við Caltech-háskólann í Kaliforníu og sú síðari er gerð við Columbia-háskóla í New York. Hvorug rannsóknin hefur verið ritrýnd af fræðimönnum og þá hafa niðurstöðurnar ekki verið birtar í neinu vísindatímariti. Sérfræðingar segja þó að niðurstöðurnar bendi til þess að útbreiðsla afbrigðisins sé raunveruleg. „Þetta eru ekki mjög góðar fréttir. En bara það að vita þetta er gott vegna þess að þá getum við kannski gert eitthvað í málinu,“ segir Michael Nussenzweig, ónæmisfræðingur við Rockefeller-háskólann, en hann kom ekki að rannsóknunum.
Bandaríkin Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Mest lesið „Þetta er kannski dýrasta tækið sem barnið á“ Innlent Lést í slysi á Hálsasveitarvegi Innlent Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Erlent Handtökur í vændisrannsókn lögreglu Innlent „Virðist vera einhverskonar gamaldags sjómennskuhefndaraðgerð“ Innlent „Það verða engir konungar“ Erlent Lögreglustjóri braut meðalhófsreglu Innlent Einn vildi sýkna þegar dómur fyrir sérlega sársaukafulla nauðgun var staðfestur Innlent Ólafur Þ. Harðarson sakaður um fánaslugs Innlent Kominn úr tunnunni og upp í lögreglubíl Innlent Fleiri fréttir Konungur Norðursins sækir að Starmer Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Íranir segjast ætla að taka gjald af siglingum um sundið „Það verða engir konungar“ Telja dráp á rússneskum teiknara „pólitískt launmorð“ Ein stærsta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leghálskrabbameini nánast útrýmt í Bretlandi eftir bólusetningarátak Þetta er í samkomulagi Trumps við Írani Fuglaflensan stráfelldi kópa á suðurskautinu Trump undirritaði samkomulag við Írani Spá allt að fjörutíu stiga hita Rex Heuermann fær lífstíðardóm Eins árs gamalt barn skotið til bana af lögreglumanni Rex Heuermann leiddur fyrir dómara í dag Mette-Marit krónprinsessa fékk ný lungu í vel heppnaðri aðgerð Skopmyndateiknari skotinn til bana Rússnesk freigáta skaut varúðarskotum að skútu í Ermarsundi Rússar skipulögðu íkveikjur gegn forsætisráðherra Bretlands Segjast hafa sprengt olíuhreinsistöð nærri Moskvu Stefna á að hafa ný aðildarríki í styttri ól Öll áhöfnin talin af Samkomulag um samkomulag undirritað og klárt Erfiðir tímar fyrir norsku konungsfjölskylduna Sonur krónprinsessunnar áfrýjar dómi Hrapaði til bana eftir að kennari gleymdi að festa reipi Það sem er vitað um samkomulagið við Írani Kallaði Michelle Obama karlmann á afmælishátíð Trump Bretar banna samfélagsmiðlanotkun upp að 16 ára aldri Réðust á dómkirkjuna í Kænugarði Sonur krónprinsessunnar dæmdur í fjögurra ára fangelsi Sjá meira