Keane sakaði Jesus um heimsku Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 8. mars 2021 08:00 Gabriel Jesus gerði sig sekan um afdrikarík mistök í Manchester-slagnum. getty/Laurence Griffiths Roy Keane og Greame Souness drógu hvergi af sér þegar þeir gagnrýndu Gabriel Jesus fyrir vítaspyrnuna sem hann fékk á sig í upphafi leiks Manchester-liðanna, City og United, í ensku úrvalsdeildinni í gær.
Aðeins þrjátíu sekúndur voru liðnar af leiknum þegar Jesus braut á Anthony Martial innan vítateigs eftir að hafa tapað boltanum á eigin vallarhelmingi. Anthony Taylor benti á vítapunktinn og Bruno Fernandes skoraði úr spyrnunni og kom United yfir. Luke Shaw bætti svo marki við í seinni hálfleik og United fagnaði 0-2 sigri. „Þetta er heimska,“ sagði Keane á Sky Sports í gær. „Hvað er hann að gera? Hvað fer í gegnum hausinn á honum? Þetta er brjálæði, að gera þetta strax á fyrstu mínútu í grannaslag.“ Souness tók í sama streng og Keane. „Þetta er bara vitlaust hjá leikmanni sem var pirraður eftir að hafa misst boltann. United hefði verið stressað í upphafi leiks en þeir fengu víti og mikið sjálfstraust. Þeir spiluðu eins og þetta væri stórleikur Evrópuleikur á útivelli.“ Með því að vinna leikinn í gær stöðvaði United ótrúlega sigurgöngu City sem hafði unnið 21 leik í öllum keppnum í röð. Þrátt fyrir tapið er City enn með ellefu stiga forskot á United á toppi ensku úrvalsdeildarinnar og er í kjörstöðu til að verða Englandsmeistari í þriðja sinn á síðustu fjórum árum.
Enski boltinn Mest lesið Hálfíslensk knattspyrnukona valin í norska landsliðið Sport „Hverjum er ekki sama hvað fólki finnst?“ Enski boltinn „Það var ekkert í heiminum að fara breytast“ Sport Völdu kærustu hennar líka númer eitt Körfubolti Manchester United stjarna í bann fyrir að blóta Enski boltinn „Þeir geta tekið þetta með sér“ Fótbolti „Við erum mjög vonsviknir og mjög reiðir“ Fótbolti Real Madrid goðsögn fallin frá Fótbolti Bæjarar áfram eftir tvö mörk í blálokin Fótbolti „Ekkert annað sem freistaði mín meira en þetta“ Handbolti Fleiri fréttir „Hverjum er ekki sama hvað fólki finnst?“ Manchester United stjarna í bann fyrir að blóta Dómarinn í leik Man. City og Arsenal fæddur í Manchester Iraola yfirgefur Bournemouth Sjáðu tíu United-menn tapa fyrir Leeds „Við verðum að muna að við erum Liverpool“ Rooney segir að Man City hafi sálfræðilegt tak á Arsenal „Ein af verstu ákvörðunum sem ég hef séð“ „Ég sagði dómaranum frá því að hann togaði í hárið á mér“ Hártog og hörmungar heimamanna þegar Leeds fagnaði á Old Trafford Sjáðu miðvörð Man. United fá rautt spjald fyrir hártog Útskýrir hegðun sína: „Meinti ekkert illt með því“ Styttist í að Mainoo skrifi undir nýjan samning Áfall fyrir Tottenham: Fyrirliðinn frá út tímabilið Tottenham að landa Robertson en það er einn stór hængur á Telur að Tottenham falli: „Þeir eru afleitir“ Sjáðu hvernig City rúllaði yfir Chelsea og vandræði Spurs jukust Öruggt hjá City sem eykur á skjálfta Skyttanna Spurs áfram í fallsæti og fyrirliðinn grátandi af velli Sjáðu unglinginn og Salah skora og mörkin sem komu Arsenal í klípu Táningurinn í stuði í dýrmætum sigri Liverpool Dramatík og Meistaradeildarvon lifir góðu lífi „Þetta er högg í andlitið“ Skjálfti í Skyttunum Kemst að munnlegu samkomulagi við Tottenham Sjáðu Hamrana skora fjögur og senda Tottenham í fallsæti Sendu Tottenham niður í fallsæti með stórsigri Segist hafa fullt traust stjórnar og stuðningsmanna Robertson kveður Liverpool og leitar á önnur mið í sumar „Við hefðum allir verið settir inn á hæli“ Sjá meira