„Þetta er besta ákvörðun sem ég hef tekið“ Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar 20. mars 2021 12:01 Ester Olga á tökustað tónlistarmyndbands Joey Christ og Tatjönu Dísar á dögunum. „Ég var á mjög erfiðum stað í lífinu og hafði áhyggjur um hvað ég ætti að gera í framtíðinni, bóklegt nám var ekki að henta mér lengur.“ segir Ester Olga Mondragon um það af hverju hún ákvað að verða förðunarfræðingur. „
Mér leið bara frekar illa með sjálfa mig því mér fannst eins og lífið mitt væri ekki að fara neitt.“ Í byrjun síðasta árs fór 22 ára Ester Olga svo í Reykjavík Makeup School og hefur síðan þá unnið að mörgum skemmtilegum verkefnum eins og förðunum fyrir tímarit og sjónvarpsþætti og fleira. Ester Olga stefnir á að verða ein af bestu förðunarfræðingunum hér á landi.Anna Margrét Sá þetta sem merki „Ég hafði alltaf átt mikinn áhuga af tískutímaritum þegar ég var lítil, ég elskaði að sjá hvernig fyrirsæturnar voru klæddar og málaðar. Svo þegar ég varð eldri horfði ég mikið á Nikkie Tutorials á Youtube. hún gaf mér mikinn innblástur og ég sá hversu mikið hægt var að gera með förðun.“ Eftir að hún fékk þá hugmynd að læra sjálf förðun var ekki aftur snúið og sér hún ekki eftir því. „Einn daginn var ég að „skrolla“ yfir Instagram og sá auglýsingu hjá Reykjavík Makeup School. Mér fannst þetta vera einhvers konar merki um að ég ætti að láta reyna á þetta. Ég trúi ekki á tilviljanir en ég trúi því að allt gerist af ástæðu. Þetta er besta ákvörðun sem ég hef tekið og ég veit að þetta er það sem ég mun alltaf vera að gera.“ Farðanir eftir Ester Olgu.Anna Margrét Smitandi ástríða kennaranna Ester Olga segir að námið hafi verið skemmtilegt, fræðilegt og áhugavert. Námið tók átta vikur og útskrifaðist hún þá með diplómu í förðun. „Ég lærði ótrúlega mikið. Ég lærði meðal annars hvernig á að farða mismunandi andlit og húðtýpur. Þær farðanir sem farið var yfir voru meðal annars beauty-, smokey-, fashion- og brúðarförðun. Það sem mér finnst best við námið var hvað kennarinn voru alltaf til að hjálpa okkur og gefa okkur ráð. Maður sá hversu mikil ástríða kemur frá þeim og hvað þau eru spennt að kenna okkur.“ Frá tökum fyrir Æði 2. Í lok námsins fékk Ester Olga verðlaun fyrir bestu ljósmyndina frá lokaprófum og var einnig með hæstu einkunn nemenda í bæði smokeyförðun og tískuförðun. Síðan þá hefur hún unnið sem freelance förðunarfræðingur og við snyrtivörukynningar á NYX Professional Makeup. „Ég hef verið að vinna rosalega mikið með henni Önnu Margréti ljósmyndara og við höfum tvisvar lent á forsíðu hjá Mob Journal. Binni Glee er í miklu uppáhaldi og ég hef farðað hann oft.“ Stolt af upprunanum Ester Olga farðaði á dögunum fyrir tónlistarmyndband Joey Christ og Tatjönu Dís sem kemur út á næstunni og einnig fyrir aðra þáttaröð af raunveruleikaþáttunum Æði á Stöð 2+ þar sem Binni, Patrekur og Bassi fara á kostum. „Þeir voru svo yndislegir, það er alltaf gaman að farða skemmtilegar persónur.“ Ester Olga segir að það sé ótrúlega gaman að farða áhrifavaldinn Binna Glee. Þessi appelsínugula og bjarta förðun er eftir Ester Olgu. Ester Olga heldur úti Instagram síðunni Mondragon Makeup fyrir sín förðunarverkefni. „Ástæðan vegna þess að ég valdi Mondragon er að það er eftirnafnið mitt og ég er mjög stolt af uppruna þess. Pabbi minn er frá Costa Rica. Þetta nafn er ekki algengt hér á landi og mig langaði vera með eitthvað sem fólk myndi muna eftir.“ Hún hvetur alla til að reyna að elta drauma sína og sjá hvað gerist. „Trúðu á sjálfan þig því það mun enginn gera það fyrir þig. Ég myndi segja að þessi ákvörðun hafi breytt öllu hjá mér, fyrir mig er þetta ekki bara áhugamál eins og sumt fólk segir, þetta er lífstíll minn. Í dag liður mér sjúklega vel og er spennt að sjá hvað framtíðin hefur upp á að bjóða.“
Förðun Tíska og hönnun Mest lesið Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Lífið Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Lífið Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Lífið Laufey Lín sló í gegn á Coachella Tónlist Britney farin í meðferð Lífið Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Lífið Mesta áskorunin að greinast með hryggskekkju Lífið Þórdís Kolbrún og Dagur byrjuð með hlaðvarp saman Menning „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Lífið „Litlu hlutirnir gefa lífinu merkingu“ Lífið Fleiri fréttir Þriðja dóttir Sverris Bergmanns og Kristínar Evu komin í heiminn Óborganlegt faðmlag Jóhanns og Sigurðar „Litlu hlutirnir gefa lífinu merkingu“ Mesta áskorunin að greinast með hryggskekkju Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Britney farin í meðferð Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Söngvari Massive Attack handtekinn á mótmælum Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Eilíf glötun bíður ekki endilega bóka í ruslagámum „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Krakkatía vikunnar: Skoffín, geitur og jarðarber Allir og amma þeirra í bókaklúbb Brúðkaupsdagurinn skilaði rúmum þremur milljónum Tónlist sem tekur á skömm og ótta með nokkrum blótsyrðum Steig fram eftir að sex ára dóttir hennar varð fyrir rasisma Mildari og þolinmóðari við sjálfa sig eftir greininguna Fréttatía vikunnar: Bó, vatn og vopnahlé Leitaði upprunans og fékk óvænta frænku í heimsókn Páll Edwald og Selma Eir trúlofuð „Er ég að klikka strax í 50?“ „Maður þarf að gera alla hluti upp“ Umdeildi brautryðjandinn Afrika Bambaataa allur Lærði að lifa lífinu upp á nýtt eftir alvarleg veikindi Sjarmatröllið sem setti popptónlist í öndvegi Halla gerir undantekningu vegna andlátsins Það er komið gó hjá Bó Sjá meira