Þetta kemur fram í tilkynningu frá Rauða krossinum í kvöld en samkvæmt nýrri reglugerð munu allir þeir sem ekki uppfylla skilyrði um heimasóttkví þurfa í sóttvarnahús, óháð því hvaða landi þeir koma frá. Fulltrúar félagsins vinna nú að yfirferð og túlkun nýrra reglna sem boðar miklar breytingar að mati félagsins.
„Það er mat Rauða krossins að ný reglugerð setji sóttvarnir og góðan árangur í sóttvarnarhúsum í uppnám og lýsa fulltrúar félagsins yfir verulegum áhyggjum af því,“ segir í tilkynningunni. Ekkert gjald verður tekið fyrir dvölina samkvæmt nýrri reglugerð og munu gestir geta notið útivistar.
Að mati Rauða krossins er lykilatriði að lágmarka umgang gesta um sameiginleg svæði eins og fremst er unnt. Reynslan hafi sýnt það að hópsmit hefðu hæglega getað komið upp þar sem nokkrir gestir á sóttvarnahótelinu reyndust smitaðir og þar af leiðandi einhverjir starfsmenn mögulega þurft í sóttkví, eða sóttkví annarra gesta framlengst.
Því metur félagið það sem svo að ekki sé unnt að tryggja útiveru gesta og sérstakan aðbúnað fyrir börn líkt og kveðið er á um í reglugerð.
„Rauði krossinn tekur af heilum hug undir mikilvægi þess að einstaklingar í sóttkví fái að njóta útiveru eins og frekast er unnt og hefur sýnt gagnrýni því tengdri skilning. En með ofangreint í huga, auk þess skamma undirbúningstíma sem reglugerðin gefur, er það mat Rauða krossins að ekki sé gerlegt að tryggja útiveru gesta og sérstakan aðbúnað fyrir börn á sóttkvíarhóteli – líkt og ný reglugerð boðar – nema á kostnað sóttvarna og þar með öryggis gesta sóttkvíarhótelsins.“