Íslenska deildin ekki hátt skrifuð hjá FIFA-spilurum Vésteinn Örn Pétursson skrifar 10. apríl 2021 12:26 Úr viðureign Vals og KR í Pepsi Max-deild karla í sumar. Telja verður ólíklegt að hægt verði að leika með liðin, eða önnur lið úr deildinni, í FIFA 22. Vísir/Daníel Þór Netkosning um hvaða knattspyrnudeildir ættu að vera í FIFA 22, næstu útgáfu knattspyrnutölvuleikjanna vinsælu, stendur nú yfir á vefsíðunni Fifplay. Pepsi Max-deild karla ríður ekki feitum hesti í kosningunum.
Um er að ræða árlega netkosningu þar sem FIFA-spilarar geta sagt sína skoðun á því hvaða deildir þykir vanta í leikinn. Síðan er þó ekki tengd EA, framleiðanda leikjanna, og því ljóst kosningin er í besta falli ráðgefandi. Í kosningunni kennir ýmissa grasa, en sú deild sem situr efst í kosningunni er gríska úrvalsdeildin, með rúmlega 28 þúsund atkvæði. Næst á eftir kemur sú ungverska, með yfir 15 þúsund atkvæði. Efsta deild karla á Íslandi, Pepsi Max-deildin, er heldur neðar á listanum. Hún situr í 85. sæti. Þegar þetta er skrifað hafa 374 lýst yfir áhuga á að hægt sé að spila með lið og leikmenn deildarinnar í FIFA 22. Rétt á undan íslensku deildinni er sú súdanska með 453 atkvæði. Þá nartar sú nýsjálenska í hæla Pepsi Max-deildarinnar, með 349 atkvæði. Hér er hægt að greiða atkvæði og skoða niðurstöður könnunarinnar. Hægt hefur verið að leika með íslenska karlalandsliðið í FIFA frá því árið 2017, en fyrsta útgáfan sem bauð upp á Strákana okkar var FIFA 18.
FIFA Pepsi Max-deild karla Leikjavísir Tengdar fréttir FIFA 21: Þetta er alltaf gaman þótt gott geti orðið betra FIFA 21 er kominn. Hann var spilaður og svo var rýnt í spilunina. 20. október 2020 08:46 Mest lesið Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Menning Svandís í ritstjórastól Menning Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Lífið Klökknaði við upprifjunina: „Á geðveikt erfiðum tíma í lífinu mínu“ Lífið Sigraði hundahlaupið með hundinn í pössun Lífið Sísí Ey snýr aftur eftir tíu ára fjarveru Tónlist Alræmt hús á Túngötu til sölu Lífið Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Menning Leitaði á náðir Dolly Parton á erfiðum tímum Lífið Dolly Parton látin Lífið Fleiri fréttir Einkaréttur Netflix á stiklu GTA 6 vekur athygli Stiklusúpa: Sturlað leikjahaust og vetur í vændum Sjá meira
FIFA 21: Þetta er alltaf gaman þótt gott geti orðið betra FIFA 21 er kominn. Hann var spilaður og svo var rýnt í spilunina. 20. október 2020 08:46