Enski boltinn

Enn og aftur meiddur: Sam­herji Gylfa frá út tíma­bilið

Anton Ingi Leifsson skrifar
Gbamin og Gylfi í baráttunni gegn Palace um helgina.
Gbamin og Gylfi í baráttunni gegn Palace um helgina. Emma Simpson/Getty

Það ætlar ekki af Jean-Phillipe Gbamin, miðjumanni Everton, að ganga en hann hefur nú lent í enn einum meiðslunum.

Þessi 25 ára gamli miðjumaður spilaði sinn fyrsta leik í nítján mánuði í 1-1 jafneflinu gegn Crystal Palace á dögunum.

Þá kom Gbamin inn á í tólf mínútur en nú er útlitið hins vegar þannig að ólíklegt er að hann spili meira á leiktíðinni.

The Athletic greinir frá því að Gbamin hafi meiðst á æfingu Everton og það muni halda honum frá fótboltavellinum út leiktíðina.

Ekki er nánar farið í hvernig hann meiddist en sögusagnir segja að meiðslin séu ekki á hásin eða læri þar sem hann hefur áður glímt við meiðsli.

Gbamin kom til Everton frá Mainz árið 2019 en hann hefur einungis leikið tvo leiki áður en hann meiddist alvarlega.

Fréttin hefur verið uppfærð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×