Sonur Solskjærs gerði grín að ummælum Mourinhos og sagðist alltaf fá að borða Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 13. apríl 2021 11:01 Ole Gunnar Solskjær ásamt sonum sínum, Noah og Elijah. getty/TROND TANDBERG Elsti sonur Ole Gunnars Solskjær, knattspyrnustjóra Manchester United, gerði góðlátleg grín að orðaskaki föðurs síns og Josés Mourinho, stjóra Tottenham, og sagðist ekki vera sveltur heima fyrir.
Solskjær var langt frá því að vera sáttur með Son Heung-min í aðdraganda mark Edinsons Cavani sem var dæmt af í leik Tottenham og United í ensku úrvalsdeildinni á sunnudaginn. United vann leikinn, 1-3, og styrkti þar með stöðu sína í 2. sæti deildarinnar. „Ef þetta væri sonur minn sem hefði legið svona lengi í grasinu og þurft hjálp frá liðsfélögum sínum við að standa upp þá fengi hann ekki að borða af því þetta var vandræðalegt,“ sagði Solskjær eftir leikinn. Mourinho tók þessum ummælum Solskjærs heldur bókstaflega og sagði að Son væri heppinn að faðir hans væri betri manneskja en stjóri United. Noah, eldri sonur Solskjær, henti gaman að þessum ummælum Mourinhos og sagðist ekki vera sveltur heima fyrir. „Ég hló að þessu. Ég lofa því að ég fæ alltaf að borða,“ sagði Noah sem er samherji Brynjólfs Andersen Willumssonar hjá norska úrvalsdeildarliðinu Kristiansund. „Líklega vildi Mourinho dreifa athyglinni frá tapinu. Þegar ég kom á æfingu í dag var ég spurður hvort ég hafi fengið að borða,“ sagði Noah léttur. Næsti leikur United er gegn Granada á Old Trafford í átta liða úrslitum Evrópudeildarinnar á fimmtudaginn. United vann fyrri leik liðanna á Spáni í síðustu viku með tveimur mörkum gegn engu.
Enski boltinn Mest lesið Hálfíslensk knattspyrnukona valin í norska landsliðið Sport „Hverjum er ekki sama hvað fólki finnst?“ Enski boltinn „Það var ekkert í heiminum að fara breytast“ Sport Völdu kærustu hennar líka númer eitt Körfubolti „Við erum mjög vonsviknir og mjög reiðir“ Fótbolti Bæjarar áfram eftir tvö mörk í blálokin Fótbolti Manchester United stjarna í bann fyrir að blóta Enski boltinn Uppgjör: Valur-Fram 26-24 | Ótrúleg endurkoma meistaranna í fyrsta leik Handbolti Olnbogi Ægis brotnaði Körfubolti „Þeir geta tekið þetta með sér“ Fótbolti Fleiri fréttir „Hverjum er ekki sama hvað fólki finnst?“ Manchester United stjarna í bann fyrir að blóta Dómarinn í leik Man. City og Arsenal fæddur í Manchester Iraola yfirgefur Bournemouth Sjáðu tíu United-menn tapa fyrir Leeds „Við verðum að muna að við erum Liverpool“ Rooney segir að Man City hafi sálfræðilegt tak á Arsenal „Ein af verstu ákvörðunum sem ég hef séð“ „Ég sagði dómaranum frá því að hann togaði í hárið á mér“ Hártog og hörmungar heimamanna þegar Leeds fagnaði á Old Trafford Sjáðu miðvörð Man. United fá rautt spjald fyrir hártog Útskýrir hegðun sína: „Meinti ekkert illt með því“ Styttist í að Mainoo skrifi undir nýjan samning Áfall fyrir Tottenham: Fyrirliðinn frá út tímabilið Tottenham að landa Robertson en það er einn stór hængur á Telur að Tottenham falli: „Þeir eru afleitir“ Sjáðu hvernig City rúllaði yfir Chelsea og vandræði Spurs jukust Öruggt hjá City sem eykur á skjálfta Skyttanna Spurs áfram í fallsæti og fyrirliðinn grátandi af velli Sjáðu unglinginn og Salah skora og mörkin sem komu Arsenal í klípu Táningurinn í stuði í dýrmætum sigri Liverpool Dramatík og Meistaradeildarvon lifir góðu lífi „Þetta er högg í andlitið“ Skjálfti í Skyttunum Kemst að munnlegu samkomulagi við Tottenham Sjáðu Hamrana skora fjögur og senda Tottenham í fallsæti Sendu Tottenham niður í fallsæti með stórsigri Segist hafa fullt traust stjórnar og stuðningsmanna Robertson kveður Liverpool og leitar á önnur mið í sumar „Við hefðum allir verið settir inn á hæli“ Sjá meira